Beint á leiðarkerfi vefsins

Stofnun ársins 2010

Niðurstöður úr könnuninni um valið á Stofnun ársins 2010 voru kynntar á Nordica hóteli föstudaginn 7. maí, kl. 17, en þetta er í fimmta sinn sem SFR stendur að vali á Stofnun ársins. Sigurvegarar voru Umferðarstofa í hópi stærri stofnana og Sýslumaðurinn á Hvolsvelli í hópi minni stofnana.

Sjá myndir af hátíðinni.

Könnunin var gerð meðal félagsmanna SFR á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað. Ennfremur var öllum stofnunum ríkisins gefinn kostur á að allir starfsmenn stofnunarinnar óháð því í hvaða stéttarfélögum þeir væru, gætu tekið þátt og nýttu margar þeirra það. Alls tóku tæplega 200 stofnanir þátt í ár og 4000 starfsmenn. Könnunin var gerð í samstarfi við VR eins og undanfarin ár en það félag hefur gert sambærilegar kannanir í á annan áratug. Kannanirnar um Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins eru stærstu reglulegu vinnumarkaðskannanirnar á Íslandi og með þeim er að verða til einn stærsti gagnagrunnur hérlendis sem mælir viðhorf starfsmanna til vinnustaðar síns og vinnuumhverfis.

Hér má sjá nánari umfjöllun um könnunina, helstu niðurstöður hennar og um fyrirmyndarstofnanirnar 2010.


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Stofnun ársins » Stofnun ársins 2010
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti