Beint á leiðarkerfi vefsins

Hástökkvari ársins

Hástökkvarinn í ár Siglingastofnun Íslands sem stökk um 82 sæti. Í ár lagði stofnunin áherslu á að könnunin næði til allra starfsmanna og er stofnunin nú í 5 sæti í flokknum Stærri stofnanir. Þetta er afar góður árangur og það er ánægjuleg að sjá þetta mikla stökk Siglingastofnunar.

Siglingastofnun Íslands
Einkunn 4,16
Fjöldi starfsmanna: 69
Könnunin náði til allra starfsmanna í ár, óháð stéttarfélagsaðild.

Helstu verkefni: Siglingastofnun Íslands hefur það meginhlutverk að vinna að öryggi sjófarenda og að skapa hagkvæmar og öruggar aðstæður til siglinga og fiskveiða við landið Í því felst m.a. rekstur vita og leiðsögukerfa, eftirlit með skipum og búnaði þeirra, skráning og mæling skipa, ýmis verkefni tengd áhöfnum skipa og  éttindaskráningu sjómanna, umsjón með leiðsögu skipa og kafarastörfum, aðstoð við rannsókn sjóslysa og afgreiðsla á tillögum rannsóknarnefndar sjóslysa, rannsóknir á sviði skipa, hafna og strandbreytinga, áætlanagerð fyrir hafnarframkvæmdir og sjóvarnir, umsjón með ríkisstyrktum hafnar- og sjóvarnarframkvæmdum og rekstur Hafnarbótasjóðs. Siglingastofnun Íslands hefur aðsetur í Vesturvör 2, 200 Kópavogi.


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Stofnun ársins » Stofnun ársins 2009 » Háskökkvari ársins
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti