Fyrirmyndarstofnanir
Stofnunum var skipt upp í stærri (50 eða fleiri starfsmenn) og minni stofnanir (færri en 50 starfsmenn), eins og gert var í fyrra, enda reyndist það vel.
| Stærri stofnanir | Minni stofnanir | |
| 1. sæti | Umferðarstofa | Sýslumaðurinn í Vík |
| 2. sæti | Ríkisskattstjóri | Biskupsstofa |
| 3. sæti | Sjálfsbjargarheimilið | SKattrannsóknarstjóri ríkisins |
| 4. sæti | Reykjalundur | Sýslumaðurinn á Sauðárkróki |
| 5. sæti | Siglingastofnun Íslands | Sýslumaðurinn í Hafnarfirði |
| Hástökkvari: Siglingastofnun Íslands | ||
STÆRRI STOFNANIR
1.sæti Umferðarstofa_743214498.jpg)
Einkunn 4,56
Fjöldi starfsmanna: 57
Könnunin náði til allra starfsmanna, óháð stéttarfélagsaðild.
Helstu verkefni: Umferðarstofa fer með stjórnsýslu á sviði umferðarmála, einkum varðandi umferðarreglur, ökutæki, ökutækjaskráningar, ökupróf og ökunám, umferðarfræðslu, slysaskráningar og fleira. Umferðarstofa var stofnun árið 2002. Umferðarstofa er til húsa að Borgartúni 30, 105 Reykjavík.
2. sæti Ríkisskattstjóri
Einkunn 4,34
Fjöldi starfsmanna: 95
Könnunin náði til allra starfsmanna, óháð stéttarfélagsaðild.
Helstu verkefni: Ríkisskattstjóri hefur leiðbeiningar- og samræmingarhlutverki að gegna þegar kemur að skattaframkvæmd. Ríkisskattstjóri hefur umsjón og eftirlit með álagningu skatta og gjalda sem á eru lögð af skattstjórum. Auk þess heldur Ríkisskattstjóri utan um ýmsar skrár og rekur fyrirtækjaskrá. Ríkisskattstjóri er til húsa að Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
3. sæti Sjálfsbjargarheimilið
Einkunn 4,29
Fjöldi starfsmanna: 90
Könnunin náði til allra starfsmanna, óháð stéttarfélagsaðild.
Helstu verkefni: Sjálfsbjargarheimilið er einkafélag í eigu Sjálfsbjargar, Landssambands fatlaðra. Þar er sinnt margháttaðri hjúkrunar- og endurhæfingarþjónustu við hreyfihamlaða. Helstu rekstrarþættir eru heimili fyrir hreyfihamlaða, þjónustu- og endurhæfingarmiðstöð, íbúðir og sundlaug. Aðsetur Sjálfsbjargarheimilisins er í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, 105 Reykjavík.
4. sæti Reykjalundur
Einkunn 4,28
Fjöldi starfsmanna: 207
Könnunin náði til félagsmanna SFR.
Helstu verkefni: Á Reykjalundi fer fram alhliða endurhæfing sem miðar að því að bæta lífsgæði, færni og sjálfsbjargargetu þeirra sem þangað leita. Meðferðin á Reykjalundi byggist á hugmyndafræði endurhæfingar þar sem teymisvinna sérhæfðs fagfólks er lögð til grundvallar. Reykjalundur er stærsta endurhæfingarstofnun landsins. Þar njóta sjúklingar meðferðar, ýmist á sólarhringsdeild, dagdeild eða göngudeild. Reykjalundur er til húsa í Mosfellsbæ.
5. sæti Siglingastofnun Íslands
Einkunn 4,16
Fjöldi starfsmanna: 69
Könnunin náði til allra starfsmanna, óháð stéttarfélagsaðild.
Helstu verkefni: Siglingastofnun Íslands hefur það meginhlutverk að vinna að öryggi sjófarenda og að skapa hagkvæmar og öruggar aðstæður til siglinga og fiskveiða við landið. Í því felst m.a. rekstur vita og leiðsögukerfa, eftirlit með skipum og búnaði þeirra , skráning og mæling skipa, ýmis verkefni tengd áhöfnum skipa og réttindaskráningu sjómanna, umsjón með leiðsögu skipa og kafarastörfum, aðstoð við rannsókn sjóslysa og afgreiðsla á tillögum rannsóknarnefndar sjóslysa, rannsóknir á sviði skipa, hafna og strandbreytinga, áætlanagerð fyrir hafnarframkvæmdir og sjóvarnir, umsjón með ríkisstyrktum hafnar- og sjóvarnaframkvæmdum og rekstur Hafnabótasjóðs. Siglingastofnun Íslands hefur aðsetur í Vesturvör 2, 200 Kópavogi.
MINNI STOFNANIR:
1. sæti Sýslumaðurinn í Vík_743214498.jpg)
Einkunn 4,75
Fjöldi starfsmanna: 5
Könnunin náði til félagsmanna SFR.
Helstu verkefni: Sýslumaðurinn í Vík er einn af 25 sýslumönnum landsins. Meginhlutverk hans er að fara með stjórnsýslu síns umdæmis, sem er Mýrdals- og Skaftárhreppur, eftir því sem lög og reglugerðir mæla fyrir um. Verkefnin tengjast m.a. lögráðamálum, þinglýsingar, sifjamálum, dánarbúum og fullnustuaðgerðum. Sérstök verkefni eru að annast útgáfu og ritstjórn lögbirtingablaðsins og leyfisveitingar til þeirra sem hyggjast starfrækja útfararþjónustu. Sýslumaðurinn í Vík er til húsa að Ránarbraut 1, 870 Vík.
2. sæti Biskupsstofa
Einkunn 4,55
Fjöldi starfsmanna: 37
Könnunin náði til félagsmanna SFR.
Helstu verkefni: Biskupsstofa er embættisskrifstofa Biskups Íslands og skrifstofa Kirkjuráðs og kirkjuþings. Hún gegnir margháttuðu hlutverki við stjórnun og reikningshald kirkjunnar og veitir sóknum, sjóðum og stofnunum kirkjunnar ýmsa þjónustu. Biskupsstofa annast almennt fyrirsvar vegna Þjóðkirkjunnar og sameiginlegra mála hennar, samskipti og samstarf við hinar ýmsu stofnanir svo og erlend samskipti. Biskupsstofa er húsa að Laugavegi 31, 150 Reykjavík.
3.sæti Skattrannsóknarstjóri ríkisisins
Einkunn 4,53
Fjöldi starfsmanna: 22
Könnunin náði til allra starfsmanna, óháð stéttarfélagsaðild.
Helstu verkefni: Skattrannsóknarstjóri hefur með höndum rannsóknir á brotum á lögum um skatta og gjöld sem á eru lögð af skattstjórum eða þeim falin framkvæmd á, ásamt rannsóknum á brotum á lögum um bókhald og lögum um ársreikninga. Skattrannsóknarstjóri ríkisins er til húsa að Borgartúni 7, 105 Reykjavík.
4. Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Einkunn 4,41
Fjöldi starfsmanna: 8
Könnunin náði til félagsmanna SFR.
Helstu verkefni: Sýslumaðurinn á Sauðárkróki er einn af 25 sýslumönnum landsins. Meginhlutverk hans er að fara með stjórnsýslu síns umdæmis, eftir því sem lög og reglugerðir mæla fyrir um. Sveitarfélög í umdæmi embættisins eru Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur . Verkefnin tengjast m.a. lögráðamálum, þinglýsingar, sifjamálum, dánarbúum og fullnustuaðgerðum. Þá fer sýslumaðurinn á Sauðárkróki með lögreglustjórn í umdæmi sínu auk þess að annast framkvæmd laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. Sýslumaðurinn á Sauðárkróki hefur aðsetur að Suðurgötu 1, 550 Sauðárkróki.
5. sæti Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Einkunn 4,38
Fjöldi starfsmanna: 30
Könnunin náði til félagsmanna SFR.
Helstu verkefni: Sýslumaðurinn í Hafnarfirði er einn af 25 sýslumönnum landsins. Meginhlutverk hans er að fara með stjórnsýslu síns umdæmis, eftir því sem lög og reglugerðir mæla fyrir um. Sveitarfélög í umdæmi embættisins eru Garðabær og Hafnarfjarðarkaupstaður og Sveitarfélagið Álftanes. Verkefnin tengjast m.a. lögráðamálum, þinglýsingar, sifjamálum, dánarbúum og fullnustuaðgerðum. Sérstök verkefni embættisins eru að annast afgreiðslu sakavottorða, vegabréfa og ökuskírteina. Einnig sér embættið um löggilding fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala og innheimta veiðigjalds. Sýslumaðurinn í Hafnarfirði hefur aðsetur í Bæjarhrauni 8, 220 Hafnarfirði.
HÁSTÖKKVARI
Siglingastofnun Íslands
Einkunn 4,16
Fjöldi starfsmanna: 69
Könnunin náði til allra starfsmanna í ár, óháð stéttarfélagsaðild.
Helstu verkefni: Siglingastofnun Íslands hefur það meginhlutverk að vinna að öryggi sjófarenda og að skapa hagkvæmar og öruggar aðstæður til siglinga og fiskveiða við landið. Í því felst m.a. rekstur vita og leiðsögukerfa, eftirlit með skipum og búnaði þeirra , skráning og mæling skipa, ýmis verkefni tengd áhöfnum skipa og réttindaskráningu sjómanna, umsjón með leiðsögu skipa og kafarastörfum, aðstoð við rannsókn sjóslysa og afgreiðsla á tillögum rannsóknarnefndar sjóslysa, rannsóknir á sviði skipa, hafna og strandbreytinga, áætlanagerð fyrir hafnarframkvæmdir og sjóvarnir, umsjón með ríkisstyrktum hafnar- og sjóvarnaframkvæmdum og rekstur Hafnabótasjóðs. Siglingastofnun Íslands hefur aðsetur í Vesturvör 2, 200 Kópavogi.



















