Beint á leiðarkerfi vefsins

SFR.is

SFR.is

Stofnun ársins 2009

Niðurstöður úr könnuninni um valið á Stofnun ársins 2009 verða kynntar á Nordica hóteli föstudaginn 8. maí, kl. 17:00, en þetta er í fjórða sinn sem SFR stendur að vali á Stofnun ársins.

Könnunin var gerð meðal félagsmanna SFR á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað. Ennfremur var öllum stofnunum ríkisins gefinn kostur á að allir starfsmenn stofnunarinnar óháð því í hvaða stéttarfélögum þeir væru, gætu tekið þátt og nýta margar þeirra það. Alls tóku tæplega 200 stofnanir þátt í ár og 3500 starfsmenn. Könnunin er gerð í samstarfi við VR eins og undanfarin ár en það félag hefur gert sambærilegar kannanir í á annan áratug. Kannanirnar um Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins eru stærstu reglulegu vinnumarkaðskannanirnar á Íslandi og með þeir er að verða til einn stærsti gagnagrunnur hérlendis sem mælir viðhorf starfsmanna til vinnustaðar síns og vinnuumhverfis.

Boðskort hafa verið send út til þeirra stofnana sem þátt tóku, stjórna og nefnda SFR, trúnaðarmanna SFR, auk annarra gesta. Niðurstöður úr könnuninni verða birtar hér á vef SFR strax að kynningu lokinni. Margt forvitnilegt kemur fram í þessari könnun núna en frekari umfjöllun verður að bíða föstudagsins.


Á döfinni

Til félagsmanna

3. September 2010

Náms- og starfsráðgjöf fyrir alla félagsmenn

Fræðslusetrið Starfsmennt býður félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á náms- og starfsráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun. Sjá nánar HÉR.

8. Júní 2010

Fræðsla um svepparíkið

Skráning hafin á námskeið um svepparíkið sem haldið verður síðsumar 2. og 4. september...

12. Maí 2010

Jónsmessuferð Lífeyrisþegadeildar SFR

Uppbókað er í Jóns-messuferð LSFR, en að þessu sinni verður farið til Stykkishólms og í siglingu...

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré English