Beint á leiðarkerfi vefsins

Fyrirmyndarstofnanir og hástökkvari

Að þessu sinni var ákveðið að skipta stofnunum upp í stærri (50 eða fleiri starfsmenn) og minni stofnanir (færri en 50 starfsmenn). Helstu rök fyrir þessari skiptingu hafa verið þau að erfitt sé að ná marktækum samanburði milli fámennra stofnana og fjölmennra. Þetta má nokkuð örugglega til sanns vegar færa.

   Stærri stofnanir     Minni stofnanir    
 1. sæti    Ríkisskattstjóri     Skattrannsóknarstjóri ríkisins
 2. sæti  Umferðarstofa     Sýslumaðurinn í Vík
 3. sæti  Sjálfsbjargarheimilið  Skattstofa Austurlands
 4. sæti  Landbúnaðarháskóli Íslands     Skattstofa Vestfjarða
 5. sæti  Reykjalundur  Búnaðarsamtök Vesturlands
 
 Hástökkvari: Sýslumaður Snæfellinga

STÆRRI STOFNANIR

Stofninarsins_2008_l.gif1. sæti, Stofnun ársins - Ríkisskattstjóri 
Einkunn: 4,28
Fjöldi starfsmanna: 96
Könnunin náði til allra starfsmanna, óháð stéttarfélagsaðild.
Helstu verkefni: Ríkisskattstjóra eru leiðbeiningar- og samræmingarstörf að því er varðar skattframkvæmd. Ríkisskattstjóri hefur umsjón og eftirlit með álagningu skatta og gjalda sem á eru lögð af skattstjórum. Ríkisskattstjóri er til húsa að Laugavegi 166, 150 Reykjavík.

Fyrirmyndarstofnun_2008_l.gif2. sæti - Umferðarstofa
Einkunn: 4,21
Fjöldi starfsmanna: 57
Könnunin náði til allra starfsmanna, óháð stéttarfélagsaðild.
Helstu verkefni: Umferðarstofa fer með stjórnsýslu á sviði umferðarmála, einkum varðandi umferðarreglur, ökutæki, ökutækjaskráningar, ökupróf og ökunám, umferðarfræðslu, slysaskráningar og fleira. Umferðarstofa var stofnuð 2002. Umferðarstofa er til húsa að Borgartúni 30, 105 Reykjavík.

Fyrirmyndarstofnun_2008_l.gif3. sæti Sjálfsbjargarheimilið
Einkunn: 4,11
Fjöldi starfsmanna: 92
Könnunin náði til allra starfsmanna, óháð stéttarfélagsaðild.
Helstu verkefni: Sjálfsbjargarheimilið er einkafélag í eigu Sjálfsbjargar-landssambands fatlaðra. Þar er sinnt margháttaðri hjúkrunar- og endurhæfingarþjónustu við hreyfihamlaða. Helstu rekstrarþættir eru heimili fyrir hreyfihamlaða, þjónustumiðstöð, endurhæfingaíbúðir og sundlaug. Aðsetur Sjálfsbjargarheimilisins er í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, 105 Reykjavík.

Fyrirmyndarstofnun_2008_l.gif4. sæti - Landbúnaðarháskólinn
Einkunn: 4,09
Fjöldi starfsmanna: 120
Könnunin náði til félagsmanna SFR.
Helstu verkefni: Skólinn er vísindaleg fræðslu- og rannsóknastofnun á háskólastigi, auk þess sem boðið er upp á starfsmenntanám í búfræði og garðyrkjutengdum greinum, auk endurmenntunar. Aðalaðsetur Landbúnaðarháskólans er á Hvanneyri í Borgarfirði en skólinn er einnig með starfsemi á eftirtöldum stöðum: Keldnaholti í Reykjavík, Reykjum í Ölfusi, Möðruvöllum í Hörgárdal, Hesti í Borgarfirði og Stóra-Ármóti í Árnessýslu.

Fyrirmyndarstofnun_2008_l.gif5. sæti - Reykjalundur
Einkunn: 4,07
Fjöldi starfsmanna: 167
Könnunin náði til félagsmanna SFR.
Helstu verkefni: Á Reykjalundi fer fram alhliða endurhæfing sem miðar að því að bæta lífsgæði, færni og sjálfsbjargargetu þeirra sem þangað leita. Meðferðin á Reykjalundi byggist á hugmyndafræði endurhæfingar þar sem teymisvinna sérhæfðs fagfólks er lögð til grundvallar. Reykjalundur er stærsta endurhæfingarstofnun landsins. Árlega njóta þar á fjórða þúsund sjúklingar meðferðar, ýmist á sólarhringsdeild, dagdeild eða göngudeild. Reykjalundur er til húsa í Mosfellsbæ.

MINNI STOFNANIR

Stofninarsins_2008_l.gif1. sæti, Stofnun ársins - Skattrannsóknarstjóri ríkisins
Einkunn: 4,64
Fjöldi starfsmanna: 22
Könnunin náði til allra starfsmanna stofnunarinnar, óháð stéttarfélagsaðild.
Helstu verkefni: Skattrannsóknarstjóri hefur með höndum rannsóknir á brotum á lögum um skatta og gjöld sem á eru lögð af skattstjórum eða þeim falin framkvæmd á, ásamt rannsóknum á brotum á lögum um bókhald og lögum um ársreikninga. Skattrannsóknarstjóri ríkisins er til húsa að Borgartúni 7, 105 Reykjavík.

Fyrirmyndarstofnun_2008_l.gif2. sæti - Sýslumaðurinn í Vík
Einkunn: 4,61
Fjöldi starfsmanna: 5
Könnunin náði til félagsmanna SFR.
Helstu verkefni: Sýslumaðurinn í Vík er einn af 25 sýslumönnum landsins. Meginhlutverk hans er að fara með stjórnsýslu síns umdæmis, sem er Mýrdals- og Skaftárhreppur, eftir því sem lög og reglugerðir mæla fyrir um. Verkefnin tengjast m.a. lögráðamálum, þinglýsingum, sifjamálum, dánarbúum og fullnustuaðgerðum. Sérstök verkefni eru að annast útgáfu og ritstjórn Lögbirtingablaðsins og leyfisveitingar til þeirra sem hyggjast starfrækja útfararþjónustu. Sýslumaðurinn í Vík er til húsa að Ránarbraut 1, 870 Vík.

Fyrirmyndarstofnun_2008_l.gif3. sæti - Skattstofa Austurlands
Einkunn: 4,44
Fjöldi starfsmanna: 10
Könnunin náði til félagsmanna SFR.
Helstu verkefni: Skattstofa Austurlands er ein af 9 skattstofum landsins. Meginhlutverk hennar er álagning skatta og gjalda hjá einstaklingum og lögaðilum, ásamt eftirliti með réttmæti álagningarinnar og skýrslugerð. Skattstofa Austurlands er til húsa að Selási 8, 700 Egilsstöðum. 

Fyrirmyndarstofnun_2008_l.gif4. sæti - Skattstofa Vestfjarða
Einkunn: 4,42
Fjöldi starfsmanna: 7
Könnunin náði til félagsmanna SFR.
Helstu verkefni: Skattstofa Vestfjarða er ein af 9 skattstofum landsins. Meginhlutverk hennar er álagning skatta
og gjalda hjá einstaklingum og lögaðilum, ásamt eftirliti með réttmæti álagningarinnar og skýrslugerð. Skattstofa
Vestfjarða er til húsa að Hafnarstræti 1-3, 400 Ísafirði. 

Fyrirmyndarstofnun_2008_l.gif5. sæti - Búnaðarsamtök Vesturlands
Einkunn: 4,37
Fjöldi starfsmanna: 22
Könnunin náði til allra starfsmanna stofnunarinnar, óháð stéttarfélagsaðild.
Helstu verkefni: Búnaðarsamtök Vesturlands þjónusta Vesturlandskjördæmi hið forna í ráðgjöf samkvæmt búnaðarlögum og búnaðarlagasamningi. Einnig þjónusta samtökin svæði Búnaðarsambands Kjalarnesþings í kúasæðingum og leiðbeiningum í sauðfjárrækt. Leiðbeiningarþjónusta er starfrækt á svæði Búnaðarsambands Vestfjarða og hefur hún aðsetur á Ísafirði. Starfssvæði BV nær því frá Hellisheiði og vestur að Hornbjargi. Búnaðarsamtök Vesturlands eru til húsa að Hvanneyri, 311 Borgarnesi.

HÁSTÖKKVARI ÁRSINS

Sýslumaður Snæfellinga er hástökkvari ársins að þessu sinni en hann hækkar sig úr raðeinkunn 4 upp í raðeinkunn 72, eða um heil 68 sæti. Má sá árangur teljast afar góður og það er ánægjulegt að sjá hversu mikið stökk Sýslumaður Snæfellinga tekur, og reyndar fleiri taka, á milli ára.

Sýslumaður Snæfellinga 
Einkunn: 4,05
Fjöldi starfsmanna: 11
Könnunin náði til félagsmanna SFR.
Helstu verkefni: Sýslumaður Snæfellinga er einn af 25 sýslumönnum landsins. Meginhlutverk hans er að fara með stjórnsýslu síns umdæmis, sem eru Eyja- og Miklaholtshreppur, Helgafellssveit, Grundarfjarðarbær, Snæfellsbær og Stykkishólmsbær, eftir því sem lög og reglugerðir mæla fyrir um. Verkefnin tengjast m.a. lögráðamálum, þinglýsingum, sifjamálum, dánarbúum og fullnustuaðgerðum. Sérstök verkefni Sýslumanns Snæfellinga eru að fara með lögreglustjórn í umdæmi sínu ásamt því að halda allsherjarskrá um kaupmála. Sýslumaður Snæfellinga er til
húsa að Borgarbraut 2, 340 Stykkishólmi.

Raðeinkunn nær frá 1 upp í 100 og sýnir hvar stofnun stendur í samanburði við hinar stofnanirnar. Ef tiltekin stofnun er með raðeinkunnina 70 eru 69% stofnana með lægri einkunn og 30% stofnana með hærri einkunn.


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Stofnun ársins » Stofnun ársins 2008 » Fyrirmyndarstofnanir
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti