Framkvæmdin
Mjög góð þátttaka í könnuninni
Framkvæmd könnunarinnar var í höndum Capacent Gallup. Í byrjun desembermánaðar 2007 fengu allir forstöðumenn ríkisstofnana, sjálfseignarstofnana og fyrirtækja þar sem SFR félagar vinna, sent kynningarbréf þar sem ítarlega var fjallað um könnunina og framkvæmd hennar. Sérstaklega var fjallað um hvernig stofnanir bæru sig að ef þær vildu að allir starfsmenn, óháð stéttarfélögum, tækju þátt. Um miðjan febrúar var síðan félagsmönnum SFR sent bréf þar sem þeir voru hvattir til að nota tækifærið og taka þátt í könnuninni.
Annars var framkvæmdin með þeim hætti að hringt var í félagsmenn SFR og þeim boðið að velja að svara könnuninni á netinu eða í hefðbundnum bréfpósti, en þeir sem vildu ekki taka þátt fengu spurningalistann ekki sendan. Þeir sem ekki náðist í fengu listann sendan í pósti.
Eins og áður segir var þeim stofnunum, sjálfseignarstofnunum og fyrirtækjum þar sem félagsmenn SFR starfa, gefinn kostur á að bjóða öllu starfsfólki sínu þátttöku, óháð stéttarfélagsaðild. Eins og komið hefur fram nýttu 35 stofnanir og sjálfseignarstofnanir tækifærið. Spurningalistarnir voru svo sendir út í byrjun febrúar.
Mjög góð þátttaka
Endanlegt úrtak samanstóð af 5599 starfsmönnum í stofnunum, sjálfseignarstofnunum og fyrirtækjum. Fullnægjandi svör bárust frá 3256 einstaklingum og er svarhlutfall því 58%. Til að vera með í greiningunni á stofnun ársins þarf svarhlutfall innan hennar að vera a.m.k.35%. Auk þess þurfa fjögur eða fleiri svör að berast frá stofnunum þar sem 50 eða færri starfa, en ef starfsmenn eru fleiri þurfa svörin að vera a.m.k. tíu. 97 stofnanir uppfylltu þessi skilyrði og frá þeim bárust 2572 svör.
Hvað þýðir....
Í töflunum eru birtar heildareinkunnir stofnana og raðeinkunnir þátta. Raðeinkunn er á skalanum 1-100 og sýnir stöðu stofnunarinnar í samanburði við aðrar á lykilþáttunum sjö. Þannig þýðir raðeinkunnin 77 að 76% stofnana fengu lægri einkunn á tilteknum þætti, en 23% fengu hærri einkunn. Raðeinkunnin 100 merkir að sama skapi hæstu einkunn.
Mælikvarðarnir
Spurningalistinn sem var sendur til þátttakenda hefur verið þróaður af SFR,VR og þeim rannsóknarfyrirtækjum
sem hafa komið að könnuninni undanfarinn áratug. Spurt er um atriði sem nota má til að meta starfsumhverfi á hverjum stað og nær mælingin til sjö lykilþátta sem skipta má í fernt. Traust til yfirmanna, virðing fyrir starfsfólki, stolt af stofnun og starfsanda. Undir fyrsta þáttinn falla þættir sem snúa að trúverðugleika stjórnenda, launakjörum og vinnuskilyrðum. Virðing fyrir starfsfólki felur í sér tvo þætti, þ.e. sveigjanleika í vinnu og sjálfstæði í starfi. Þættirnir ímynd og stolt af stofnun annars vegar og starfsandi hins vegar, meta stolt af stofnuninni og ímynd hennar, samstarf og andrúmsloft á vinnustaðnum.
Heildareinkunn stofnana er að lokum reiknuð út frá lykilþáttunum, en vægi þeirra er mismikið. Traust til stofnunar og yfirmanna vegur 51% af heildareinkunn stofnunar, virðing fyrir starfsfólki 26%, ímynd og stolt af stofnun 13% og starfsandi 10%. Heildareinkunnin er á kvarðanum 1-5, þar sem 5 er hæsta einkunn og 1 er lægst.
Breytingar á þáttum
Eins og komið hefur fram eru þættirnir nú 7 en ekki 8 eins og þeir hafa verið. Engu að síður byggjast þættirnir á sömu spurningum sem legið hafa til grundvallar mælingunni á stofnun ársins undanfarin ár. Þátturinn álag og kröfur dettur nú út en allar spurningarnar nema ein sem féllu undir þann þátt tilheyra nú þættinum „sveigjanleiki
vinnu". Eins hefur vægi þáttanna breyst á milli ára en það er eðlilegt þar sem breyttar áherslur í atvinnulífinu endurspeglast í hvað skiptir starfsmenn mestu máli á hverjum tíma. Vægi þáttanna er þannig reiknað út frá svörum þátttakenda sjálfra.
Í listanum er einnig birt svarhlutfall hverrar stofnunar en það er reiknað þannig að fjölda svarenda í hverri stofnun er deilt með fjölda útsendra spurningalista til viðkomandi stofnunar. Svarhlutfall fimm neðstu stofnananna í hvorum flokki er ekki birt en þessar stofnanir uppfylla þó öll skilyrði um lágmarkssvörun.
Vikmörk
Í töflunni yfir stöðu stofnana hafa ávallt verið birt vikmörk sem segja til um á hvaða bili heildareinkunn
fyrirtækis er miðað við 95% vissu. Sú ákvörðun var tekin nú að taka vikmörkin út úr töflunni hér. Vikmörkin koma fram í töflunum á heimasíðu SFR.
Könnunin nær til ríkisstofnana, sjálfseignarstofnana og fyrirtækja
Stærstur hluti félagsmanna SFR starfar hjá stofnunum ríkisins, en einnig vinna fjölmargir þeirra hjá sjálfseignarstofnunum og fyrirtækjum og hlutafélögum á almennum markaði. Í umfjölluninni um könnunina er oftast rætt um „stofnun" þó efnið eigi að sjálfsögðu einnig við um fyrirtækin og sjálfseignarstofnanir.



