Beint á leiðarkerfi vefsins

Athyglisverð svör

Nokkrar athyglisverðar spurningar og svör

Fróðlegt er að skoða svör við einstökum spurningum könnunarinnar. Hér á eftir koma dæmi um svör sem vöktu athygli.

Næsti yfirmaður hefur hjálpað mér að bæta frammistöðu mína í starfi
Flestir (66%) eru sammála því að næsti yfirmaður hafi hjálpað þeim að bæta frammistöðu sína í starfi. Töluverður munur kemur fram eftir menntun, en starfsfólk með háskólamenntun er mun líklegra (73%) til að vera sammála staðhæfingunni en starfsfólk sem lokið hefur grunnskólaprófi (63%). Þá er greinilegt að nýliðar njóta almennt aðhalds næsta yfirmanns, því 76% þeirra sem hafa 2ja ára eða styttri starfsaldur segja að yfirmaður hafi hjálpað þeim að bæta frammistöðu í starfi samanborið við um og rétt yfir 60% þeirra sem eiga lengri starfsaldur að baki.

Það er ætlast til þess að ég eða oftast ætlast til að þeir vinni yfirvinnu sé þess þörf
Um 40% þátttakenda segja að það sé alltaf eða oftast ætlast til að þeir vinni yfirvinnu sé þess þörf, sem er þó nokkur hækkun frá síðasta ári en þá tók tæpur þriðjungur undir staðhæfinguna með þessum hætti. Mun fleiri karlar en konur, eða tæp 60%, telja að yfirvinnukrafa sé á þá samanborið við rétt tæplega þriðjung kvenna. Töluverður munur kemur einnig fram eftir atvinnugrein hvað þetta varðar. Í heilbrigðis- og félagsþjónustu segja um 28% að það sé alltaf eða oftast ætlast til að þeir vinni yfirvinnu samanborið við 65% í verslunar- og sölustörfum og 57% í landbúnaði, hjá orkustofnunum og í skógrækt.

Ertu ánægð(ur) eða óánægð(ur) með þann sveigjanleika sem þú hefur í vinnunni?
Mjög sambærilegt hlutfall þátttakenda nú (78%) og í könnuninni árið 2007 segjast ánægðir með þann sveigjanleika sem það hefur í vinnunni. Því hærri stöðu sem fólk gegnir þeim mun ánægðara er það með þann sveigjanleika sem það hefur í starfi sínu. Starfsfólk í löggæslu, fangelsum og hjá dómstólum annars vegar, og í verslunar- og sölustörfum hins vegar, er áberandi óánægðast með sveigjanleika í starfi.

Ánægja í starfi
Nokkuð færri nú samanborið við könnunina árið 2007 segjast ánægðir í starfi sínu. Þó segjast langflestir, eða 83%, vera ánægðir í starfi sínu en árið 2007 var þetta hlutfall 93%*. Meirihluti svarenda (75%) er jafnframt stoltur af
stofnuninni sem þeir starfa hjá.

*Spurningin er ekki alveg sambærileg á milli ára þar sem kvarðanum var breytt.


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Stofnun ársins » Stofnun ársins 2008 » Athyglisverð svör
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti