Beint á leiðarkerfi vefsins

Hástökkvararnir 2007

Skrifstofa rannsóknastofnana atvinnuveganna (SRA) er hástökkvari ársins 2007, fór úr 92. sæti á listanum í fyrra í það 35. Heildareinkunn fyrirtækisins var 3,90 í ár sem er vel yfir meðaltalinu sem er 3,64. Heildareinkunn SRA í fyrra var 3,09.

Stofnunin hækkar sig mikið þegar litið er til einkunna fyrir helstu lykilþætti, en lykilþættirnir fá raðeinkunn á bilinu frá 1 til 100 sem byggja á heildarlista allra fyrirtækja. SRA fékk 6 af 100 mögulegum fyrir sveigjanleika í vinnu í fyrra en fær núna 100. Einkunn fyrir launakjör hækkar úr 5 í 64, álag og kröfur fer úr 29 á síðasta ári í 91, og vinnuskilyrði fá einunnina 95 í  í ár miðað við 78 í fyrra. 

Fjöldi starfsmanna SRA er 9 og helstu verkefni fela í sér að annast bókhald og fjárvörslu fyrir rannsóknastofnanir atvinnuveganna. Öll fjármál rannsóknastofnana atvinnuveganna fara í gegnum skrifstofuna. Hún sér um greiðslu reikninga, útborganir styrkja, innheimtu allra sértekna, allt bókhald og gerð ársreikninga, launaafgreiðslur, tollskýrslugerð, gjaldeyrismál og margt fleira. Skrifstofa rannsóknastofnana atvinnuveganna er til húsa að Nóatúni 17, 105 Reykjavík.
Topp 5 hástökkvarar

Raðeinkunn
2006

Raðeinkunn
2007

Stökk

Skrifstofa rannsóknastofnana atvinnuveganna

3

66

63

Sýslumaðurinn Seyðisfirði  

19

71

52

Sýslumaðurinn í Reykjavík 

5

49

44

Skálatúnsheimilið  

25

61

36

Skattstofa Reykjaness  

6

40

34

 


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Stofnun ársins » Stofnun ársins 2007 » Hástökkvarar 2007
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti