Beint á leiðarkerfi vefsins

SFR.is

SFR.is

Framkvæmdin

Framkvæmd könnunarinnar var í höndum Capacent Gallup. Í byrjun desembermánaðar 2006 fengu allir forstöðumenn ríkisstofnana, sjálfseignarstofnana og fyrirtækja, þar sem SFR félagar vinna, sent kynningarbréf þar sem ítarlega var fjallað um könnunina og framkvæmd hennar. Sérstaklega var fjallað um hvernig stofnanir bæru sig að ef þær vildu að allir starfsmenn, óháð stéttarfélögum, tækju þátt.

Um miðjan febrúar var síðan félagsmönnum SFR sent bréf þar sem þeir voru hvattir til að nota tækifærið og taka þátt í könnuninni. Annars var framkvæmdin með þeim hætti að hringt var í félagsmenn SFR og þeim boðið að velja að svara könnuninni á netinu eða í hefðbundnum bréfpósti, en þeir sem vildu ekki taka þátt fengu spurningalistann ekki sendan. Þeir sem ekki náðist í fengu listann sendan í pósti.

Eins og áður segir þá var þeim stofnunum, sjálfseignarstofnunum og fyrirtækjum þar sem félagsmenn SFR starfa gefinn kostur á að bjóða öllu starfsfólki sínu þátttöku, óháð stéttarfélagsaðild.  19 stofnanir og sjálfseignarstofnanir nýttu tækifærið. Spurningalistarnir voru svo sendir út í byrjun febrúar.

Mjög góð þátttaka
Endanlegt úrtak samanstóð af 5485 starfsmönnum í stofnunum, sjálfseignarstofnunum og fyrirtækjum. Fullnægjandi svör bárust frá 3035 einstaklingum og er svarhlutfall því 55,3%. Til að vera með í greiningunni á stofnun ársins þarf svarhlutfall innan hennar að vera a.m.k. 30%. Auk þess þurfa fjögur eða fleiri svör að berast frá stofnunum þar sem 50 eða færri starfa, en ef starfsmenn eru fleiri þurfa svörin að vera a.m.k. tíu. 99 stofnanir uppfylltu þessi skilyrði og frá þeim bárust 2584 svör.

Hvað þýðir....
Í töflunni yfir stofnanir ársins eru birt vikmörk við heildareinkunn stofnana, en þau segja til um á hvaða bili heildareinkunnin liggur miðað við 95% vissu. Þannig má fullyrða með 95% vissu að heildareinkunn Skattrannsóknarstjóra ríkisins sé á bilinu 4,56 - 4,68 því vikmörkin eru ±0,06 en einkunnin sjálf er 4,62. Þegar heildareinkunn tveggja stofnanna +/- vikmörk skarast ekki er um tölfræðilega marktækan mun að ræða. Þar sem svarhlutfallið er 100%, þ.e.a.s. þar sem allir sendu inn svör, eru vikmörkin 0.

Ekki eru birtar einkunnir einstakra þátta hjá stofnunum, heldur raðeinkunnir þeirra. Raðeinkunn er á skalanum 1 - 100 og sýnir stöðu stofnunarinnar í samanburði við aðrar á lykilþáttunum átta. Þannig þýðir raðeinkunnin 77 að 76% stofnana fengu lægri einkunn á tilteknum þætti, en 23% fengu hærri einkunn. Raðeinkunnin 100 merkir að sama skapi hæstu einkunn.

Mælikvarðarnir
Spurningalistinn sem var sendur til þátttakenda hefur verið þróaður af SFR, VR og þeim rannsóknarfyrirtækjunum sem hafa komið að könnuninni með VR undanfarinn áratug. Spurt er um atriði sem nota má til að meta starfsumhverfi á hverjum stað og nær mælingin til átta lykilþátta sem skipta má í fernt. Traust til yfirmanna, virðing fyrir starfsfólki, stolt af stofnun og starfsandi. Undir fyrsta þáttinn falla þættir sem snúa að trúverðugleika stjórnenda, launakjörum og vinnuskilyrðum.Virðing fyrir starfsfólki felur einnig í sér þrjá þætti, þ.e. sveigjanleika í vinnu, sjálfstæði í starfi og álag og kröfur. Þættirnir stolt og starfsandi meta annars vegar stolt af stofnuninni og ímynd hennar og hins vegar samstarf og andrúmsloft á vinnustaðnum.

Heildareinkunn stofnana er að lokum reiknuð út frá lykilþáttunum, en vægi þeirra er mismikið. Traust til stofnunar og yfirmanna vegur 40% af heildareinkunn stofnunar, virðing fyrir starfsfólki vegur 30% en mælikvarðarnir stolt og starfsandi vega 15% hvor.

Heildareinkunnin er á kvarðanum 1 - 5, þar sem 5 er hæsta einkunn og 1 er lægst.

Könnunin nær til ríkisstofnana, sjálfseignarstofnana og fyrirtækja
Stærstur hluti félagsmanna SFR starfar hjá stofnunum ríkisins, en einnig vinna fjölmargir þeirra hjá sjálfseignarstofnunum og fyrirtækjum og hlutafélögum á almennum markaði. Í umfjölluninni um könnunina er oftast rætt um „stofnun" þó efnið eigi að sjálfsögðu einnig við um fyrirtækin og sjálfseignarstofnanir.


Á döfinni

Til félagsmanna

3. September 2010

Náms- og starfsráðgjöf fyrir alla félagsmenn

Fræðslusetrið Starfsmennt býður félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á náms- og starfsráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun. Sjá nánar HÉR.

8. Júní 2010

Fræðsla um svepparíkið

Skráning hafin á námskeið um svepparíkið sem haldið verður síðsumar 2. og 4. september...

12. Maí 2010

Jónsmessuferð Lífeyrisþegadeildar SFR

Uppbókað er í Jóns-messuferð LSFR, en að þessu sinni verður farið til Stykkishólms og í siglingu...

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré English