Athyglisverð svör
Nokkrar athyglisverðar spurningar og svör
Fróðlegt er að skoða svör við einstökum spurningum könnunarinnar. Hér á eftir koma dæmi um svör sem vöktu athygli.
Yfirstjórn stofnunarinnar virðir starfsfólk mikils
Innan við helmingur þátttakenda (45%) er sammála því að yfirstjórn stofnunarinnar virði starfsfólk mikils. Mestur munur á afstöðu til þessarar staðhæfingar kemur fram innan atvinnugreina en starfsfólk í landbúnaði, hjá orkustofnunum og í skógrækt er líklegast til að vera sammála fullyrðingunni á meðan starfsfólk í heilbrigðis og félagsþjónustu og í löggæslu, dómstólum og fangelsum er líklegra en annað til að vera ósammála henni. Starfsfólk í minni stofnunum (færri en 50 starfsmenn) er líklegra en starfsfólk stærri stofnana (50 starfsmenn eða fleiri) til að telja að yfirmenn virði starfsfólk mikils.
Ertu sátt(ur) eða ósátt(ur) við vinnuálag þitt í starfi?
Flestir eða 64% eru sáttir við vinnuálag sitt í starfi en hátt í fimmtungur (18%) starfsfólks er ósáttur við vinnuálagið. Starfsfólk í landbúnaði, hjá orkustofnunum og í skógrækt er sáttara en annað við vinnuálagið en aðeins 7% í þeirri atvinnugrein segjast ósátt við það samanborið við 29% starfsfólks í löggæslu, hjá dómstólum og í fangelsum.
Það er ætlast til þess að ég vinni yfirvinnu sé þess þörf
Tæpur þriðjungur svarenda segir að það sé ætlast til þess að þeir vinni yfirvinnu sé þess þörf. Mikill munur kemur fram eftir kyni en 52% karla segja að það sé oftast eða alltaf ætlast til að þeir vinni yfirvinnu sé þess þörf samanborið við 26% kvenna.
Ertu ánægð(ur) eða óánægð(ur) með þann sveigjanleika sem þú hefur í vinnunni?
Langflestir eða um 79% segjast ánægðir með þann sveigjanleika sem þeir hafa í vinnunni. Mestur munur á upplifun starfsfólks á þeim sveigjanleika sem það hefur í starfinu kemur fram innan atvinnugreina. Starfsfólk í landbúnaði, hjá orkustofnunum og í skógrækt er ánægðast með þann sveigjanleika sem það hefur í starfinu (yfir 92% svarenda eru ánægðir) en starfsfólk í löggæslu, hjá dómstólum og í fangelsum óánægðast (tæp 54% eru ánægð).
Ég fæ nægar upplýsingar um það sem gerist hjá stofnuninni
Innan við helmingur starfsfólks (45%) telur sig fá nægar upplýsingar um það sem gerist hjá stofnuninni sem það starfar hjá. Töluverður munur kemur fram milli atvinnugreina en þar sker starfsfólk í löggæslu, hjá dómstólum og í fangelsum sig úr að því leyti að það er líklegast til að telja að það fái ekki nægar upplýsingar um það sem gerist hjá stofnuninni sem það starfar hjá. Þá kemur fram munur eftir stærð stofnunar en fleiri (60%) starfsmenn minni stofnana telja sig fá nægar upplýsingar um það sem gerist hjá stofnuninni samanborið við 41% starfsmanna í stærri stofnunum.
Ánægja og vellíðan í starfi
Langflestir eða 93% eru ánægðir í starfi sínu. Tæpur helmingur svarenda eða 47% segist mjög ánægður í starfi sínu og 46% starfsfólks er nokkuð ánægt í starfi sínu. Því hærri stöðu sem fólk gegnir því ánægðara er það. Starfsfólk í landbúnaði, hjá orkustofnunum og í skógrækt er ánægðast en 58% þeirra segjast mjög ánægð í starfi sínu samanborið við rétt um þriðjung starfsfólks í löggæslu, hjá dómstólum og í fangelsum.
Langflestum (84%) líður einnig vel í vinnunni þegar á heildina er litið. Starfsfólk í löggæslu, hjá dómstólum og í fangelsum sker sig þar úr að því leyti að þar eru flestir (29%) sem segja sér hvorki líða vel né illa en það segja 8-20% svarenda í öðrum atvinnugreinum.



