Stofnun ársins 2007
Skattrannsóknarstjóri ríkisins stofnun ársins annað árið í röð
Skattrannsóknarstjóri ríkisins er stofnun ársins 2007 að mati rúmlega 3000 starfsmanna á opinberum vinnumarkaði með 4,62 í heildareinkunn af 5 mögulegum. Þetta er annað árið í röð sem Skattrannsóknarstjóri ríkisins hlýtur titilinn Stofnun ársins og má það teljast góður árangur og vísbending um að mikil áhersla sé lögð á gott innra starf hjá stofnuninni. Í öðru sæti var Biskupsstofa og Skattstofa Suðurlands í því þriðja. Bæði hjá Skattrannsóknarstjóra og Biskupsstofu tóku allir starfsmenn þátt í könnuninni, óháð stéttarfélagsaðild. Öllum stofnunum ríkisins var boðið að gefa öllum starfsmönnum tækifæri að taka þátt í könnuninni. 19 stofnanir notfærðu sér þennan möguleika og eru þær merktar með * í einkunnalistanum yfir stofnanir. Þessar stofnanir eru Fyrirmyndarstofnanir SFR árið 2007.
Heildarskýrslu með lokaniðurstöðum fyrir Stofnun ársins 2007 má nálgast HÉR.
Hástökkvarinn
Stofnunin sem bætti sig mest á milli ára er Skrifstofa rannsóknastofnana atvinnuveganna sem hækkar sig frá raðeinkunn 3 í raðeinkunn 66, eða um heil 63 sæti. Má sá árangur teljast afar góður og er ánægjulegt að sjá hversu mikið stökk þessi stofnun og reyndar fleiri, taka milli ára.
Þetta er í annað sinn sem SFR stendur að könnuninni Stofnun ársins og á hún sér stað meðal félagsmanna SFR á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað. Könnunin, sem gerð er í samstarfi við VR, náði til um þrjátíu þúsund starfsmanna bæði hjá opinberum stofnunum og hjá fyrirtækjum á almennum vinnumarkaði og er því um að ræða mjög umfangsmikla könnun á íslenskum vinnumarkaði.
Lykilatriðin átta
Í könnuninni er leitast við að kortleggja aðbúnað og ánægju fólks á vinnumarkaði. Kannað er viðhorfið til nokkurra lykilatriða, það er trúverðugleika stjórnenda, launakjara, vinnuskilyrða og sveigjanleika í vinnu, spurt er um möguleika starfsmanna á sjálfstæðum ákvörðunum í starfi, starfsandann á vinnustaðnum, ímynd og stolt starfsmanna af fyrirtæki sínu eða stofnun.
Ýmislegt áhugavert má lesa úr niðurstöðunum, bæði hvað varðar viðhorf á vinnumarkaði og stöðu atvinnugreina. Sjá nánari umfjöllun um:
- Einkunnir stofnana - töflur á pdf formi
- Fyrirmyndarstofnanir
- Hástökkvarinn
- Helstu niðurstöður
- Athyglisverðar spurningar og svör
- Framkvæmdina
- Samanburð á SFR og VR
- Niðurstöður happdrættisins
Hvernig geta stofnanir fengið ítarlegri upplýsingar?
Þátttökustofnunum gefst kostur á að fá sérgreiningu frá Capacent með gögnum fyrir sína stofnun, svo framarlega sem þátttaka starfsmanna uppfyllir skilyrði um lágmarkssvörun. Í þeirri skýrslu er gerð ítarleg greining á niðurstöðunum. Þá er meðaltal hverrar spurningar hjá viðkomandi stofnun borið saman við meðaltal allra stofnana á viðkomandi spurningu. Einnig eru breytingar frá síðustu mælingu skoðaðar þegar það á við. Þeim sem áhuga hafa á frekari upplýsingum er bent á að hafa samband við: Hrefnu Guðmundsdóttur (s: 540 1000 / 540 1014) - hrefna.gudmundsdottir@capacent.is eða Þórhall Ólafsson (s. 540 1000 / 540 1029) - thorhallur.olafsson@capacent.is
Niðurstöður
Fjallað var um niðurstöður könnunarinnar í 5. tbl. SFR blaðsins 2007.
Happdrættið 2007
Búið er að draga í happdrætti sem haldið var í tengslum við launakönnun og könnun á stofnun ársins 2007. Í vinning eru 10 flugferðir til Evrópu fyrir tvo. Vinningsnúmerin eru:
2193, 11617, 16208, 18055, 18797, 35410, 41162, 41366, 50512, 54276
Vinningshöfum er bent á að hafa samband við Jóhönnu Þórdórsdóttur hjá SFR í síma 525 8340.

