Beint á leiðarkerfi vefsins

Stofnun ársins 2006

Skattrannsóknarstjóri ríkisins var fyrsta Stofnun ársins sem SFR útnefndi og fékk hún heildareinkunnina 4,48 af 5 mögulegum. Í næstu sætum voru Biskupsstofa, Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma, Sjálfsbjargarheimilið og skattstofa Suðurlands. Þessar stofnanir eru Fyrirmyndarstofnanir SFR árið 2006.

Könnunin, sem gerð er í samstarfi við VR, náði til um þrjátíu þúsund starfsmanna bæði hjá opinberum stofnunum og hjá fyrirtækjum á almennum vinnumarkaði og var þetta því umfangsmesta könnun á íslenskum vinnumarkaði sem gerð hefur verið. Um 17 stofnanir, þar á meðal Skattrannsóknarstjóri ríkisins, buðu öllum starfsmönnum sínum að taka þátt, óháð stéttarfélagsaðild, og eru þær merktar með * í listanum yfir stofnanir.

Í könnuninni er leitast við að kortleggja aðbúnað og ánægju fólks á vinnumarkaði. Kannað er viðhorfið til nokkurra lykilatriða, það er trúverðugleika stjórnenda, launakjara, vinnuskilyrða og sveigjanleika í vinnu, spurt er um möguleika starfsmanna á sjálfstæðum ákvörðunum í starfi, starfsandann á vinnustaðnum, ímynd og stolt starfsmanna af fyrirtæki sínu eða stofnun.

Ýmislegt áhugavert má lesa úr niðurstöðunum, bæði hvað varðar viðhorf á vinnumarkaði og stöðu atvinnugreina. Sjá nánari umfjöllun um:

Niðurstöður
Fjallað var um niðurstöður könnunarinnar í 6. tbl. SFR blaðsins 2006.


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Stofnun ársins » Stofnun ársins 2006
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti