Beint á leiðarkerfi vefsins

Stofnun ársins

Niðurstöður úr könnuninni um valið á Stofnun ársins 2011 voru kynntar, föstudaginn 13. maí, en þetta er í sjötta sinn sem SFR stendur að vali á Stofnun ársins. Könnunin var gerð meðal félagsmanna SFR og annarra ríkisstarfsmanna  á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað. Umfang könnunarinnar er umtalsvert stærra í ár en verið hefur þar sem starfsmannaskrifstofa fjármálaráðuneytisins er nú í samstarfi við félagið. Könnunin náði til 19 þúsund ríkisstarfsmanna og samtals til um 44 þúsund starfsmanna á almennum og opinberum vinnumarkaði, en SFR hefur verið í samstafi við VR um valið á Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins um árabil.

Niðurstöður könnunarinnar Stofnun ársins 2011 eru birtar hér á vefnum og í sérriti SFR.

Happdrættið - 10 heppnir vinningshafar - Stofnun ársins 2011

Búið er að draga út í happdrættinu en happdrættismiði fylgdi spurningakönnuninn og hafa vonandi sem flestir varðveitt hann vel, enda mikið í húfi. Dregnir voru út 10 vinningar sem eru gjafabréf hjá Icelandair að andvirði 50 þúsund krónur hver, og komu vinningar á eftirfarandi númer;   

3355,  5543,  9232,  13778,  13780,  32551,  52082,  64379,  64666,  69496.

Vinningshafar eru beðnir um að hafa samband við Jóhönnu Þórdórsdóttur á skrifstofu SFR, s. 525 8344 eða johanna@sfr.is. Þeir sem tóku þátt í könnuninni en hafa einhverra hluta vegna ekki lengur miðann sinn, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Tómas Bjarnason hjá Capacent í síma 540 1000 eða tomas.bjarnason@capacent.is

------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Í janúar og byrjun febrúar er hringt í félagsmenn og þeim boðin þátttaka í könnuninni og spurningalistarnir eru sendir út í annarri viku febrúar. Ef félagsmaður hefur ekki fengið könnunina fyrir 15. febrúar þá er um að gera að láta vita í s. 525-8340 eða senda póst á johanna@sfr.is.

Niðurstöður könnunarinnar verða kynntar 13. maí 2011. Sjá myndir af kynningarhátíðinni 2010.  

Ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi könnunina eða framkvæmd hennar vinsamlegast hafið samband  við Capacent Gallup í síma 540 1000, þar sem Tómas Bjarnason og Þórhallur Ólafsson og veita nánari upplýsingar.

Af hverju stofnun ársins?
Könnun sem þessi gefur góða mynd af starfsumhverfi stofnunarinnar og starfsánægju. Starfsmenn geta notað niðurstöðurnar til að meta eigin vinnustað í samanburði við aðrar stofnanir og fyrirtæki. Einnig er hér ekki síður tækifæri fyrir stjórnendur að gera sér grein fyrir stöðu starfsmannamála í stofnuninni og hvar þeir standa í samanburði við aðra. Það er mikilvægt að stjórnendur taki niðurstöðunum með jákvæðu hugarfari og horfi fyrst og fremst á þessa úttekt sem mikilvægt skref til að bæta og breyta því sem betur má fara í starfinu. 

Þátttaka verðlaunuð með ferðavinningum
Þeim hluta sem snýr að þátttakendum í könnunni er hins vegar lokið og eru starfsmenn sem svöruðu könnuninni fljótt og vel verðlaunaðir með möguleika á glæsilegum ferðavinningi.

Happdrættismiði fylgir gögnum hvers og eins og hafa vonandi sem flestir varðveitt hann vel, enda mikið í húfi. Dregnir verða út 10 vinningar sem eru gjafabréf hjá Icelandair að andvirði 50 þúsund krónur hver. Upplýsingar um vinningsnúmer munu birtast hér þegar búið er að draga.


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Stofnun ársins
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti