Samanburður við önnur félög
Launakönnun SFR og St.Rv. er unnin í samstarfi við VR, eins og fram hefur komið. Það þýðir að félagsmenn stéttarfélaganna þriggja fá senda samskonar spurningalista frá Capacent Gallup sem vinnur könnunina.
Félagsmenn VR starfa á almennum markaði en félagsmenn SFR hjá ríki, sjálfseignarstofnunum og opinberum fyrirtækjum og félagsmenn St.Rv. hjá Reykjavíkurborg, Akraneskaupstað og fleiri opinberum fyrirtækjum og stofnunum.
Könnunin leiðir í ljós nokkurn mun á félögunum eins og sjá má af töflu með samanburðinum hér að neðan.
Launamunur á milli almenna og opinbera markaðarins eykst
Niðurstöður könnunarinnar sýna að heildarlaun hækka meira hjá VR eða um 4,5% á milli ára meðan laun SFR félaga hækka að meðaltali um 1%. Launabilið milli þessara tveggja félaga eykst því heldur á milli ára annað árið í röð og er nú 19% að teknu tilliti til kyns, aldurs, starfsaldurs, vinnustunda, starfstétta, menntunar og vaktaálags. Í krónum talið var munurinn á meðalheildarlaunum VR og SFR í fyrra 97 þúsund á mánuði en í ár er munurinn 112 þúsund á mánuði að meðaltali.
Kynbundinn launamunur stendur í stað hjá VR á milli ára en hann hækkar þó nokkuð hjá SFR á milli ára eða úr 9,9% í 13,2% að teknu tilliti til vaktaálags.
Kynbundinn launamunur mælist minnstur hjá St.Rv. eða um 9,2%. Líkt og á síðasta ári dregur úr ánægju með launakjör bæði hjá VR og SFR.
Lítill launamunur heildarlauna mælist á milli SFR og St.Rv. og félögin samsvara sér einnig töluvert að öðru leyti. Helst kemur munur fram á milli SFR og St.Rv. í menntun félagsmanna en tæp 30% félagsmanna St.Rv. hafa háskólapróf á móti um 10% félagsmanna SFR. Sama hlutfall gildir um VR en um 30% félagsmanna VR er með háskólapróf.
Meðal lífaldur hefur hækkað um 1 ár hjá SFR félögum og starfsaldur sömuleiðis lítillega sem bendir til þess að lítil hreyfing hafi verið á félagsmönnum SFR á milli starfa síðustu 12 mánuði. Hins vegar virðist nokkur hreyfing á félagsmönnum VR en meðal lífaldur VR félaga lækkar á milli ára og sömuleiðis meðal starfsaldur.

