Staða á vinnumarkaði
Hversu auðvelt, erfitt telur þú að það sé að fá aðra vinnu á sambærilegum kjörum?
Í könnuninni voru félagsmenn spurðir að því hversu auðvelt eða erfitt þeir teldu að það væri að fá aðra vinnu á sambærilegum kjörum.
Ríflega helmingur félagsmanna SFR eða um 55% telur erfitt að fá nýtt starf á svipuðum kjörum. Ef skoðuð eru svör við sömu spurningu hjá félagsmönnum SFR í fyrra má sjá að þeim fækkar töluvert á milli ára sem telja erfitt að fá nýtt starf á svipuðum kjörum, en í fyrra voru þeir um 66%.
Þessi breyting er athyglisverð og getur stafað af a.m.k. tvennu. Annars vegar breytingum á aðstæðum á vinnumarkaði þar sem fólk telur vinnumarkað vera að opnast og hins vegar breytingum á mati fólks á eigin starfi þar sem félagsmenn telja að laun sín hafi lækkað svo mikið að þeir telji auðveldara að finna aðra sambærilega vinnu á álíka eða betri kjörum.
Staða á vinnumarkaði, nokkur atriði
- Því eldra sem fólk er, því minna gerir fólk til að styrkja stöðu sína.
- Því meiri menntun sem fólk hefur, því meira gerir fólk til að styrkja stöðu sína.
- Því skemmri starfsaldur, því meira gerir fólk.
- Konur velja frekar “Sjálfstyrkingu” en karlar. Karlar nefna frekar “námskeið / þjálfun á mínu starfssviði”.
- Eldra fólk nefnir frekar “námskeið / þjálfun á mínu starfssviði” – yngra fólk nefnir frekar “nám með vinnu” eða “hefja fullt nám”.

