Beint á leiðarkerfi vefsins

Launaþróun

Hækkun heildarlauna á milli ára

Heildarlaun SFR félaga í fullu starfi 1. febrúar 2011 voru 329 þúsund sem er um 1% hækkun frá fyrra ári.

Karlar hækka að meðaltali  um 0,4% á milli ára og  konur um 1%. Í fyrra hækkuðu karlar um 3,8% og konur um 0,5%

Laun hækka samfara auknum starfsaldri og aukinni menntun og stjórnendur og sérfræðingar eru með 56% hærri laun en skrifstofufólk við afgreiðslu.

Mynd 1. Launaþróun heildarlauna eftir kyni.

launaþr1

Hækkun grunnlauna á milli ára

Grunnlaun/dagvinnulaun fyrir fullt starf voru að meðaltali um 279 þúsund 1. feb. 2011 sem er um 2% hækkun á milli ára.

Karlar hækka um 1,5% að meðaltali og  konur um 2,3%

Grunnlaun hækka með auknum starfsaldri og menntun. Grunnlaun eru 17% hærri hjá háskólamenntuðum en fólki með grunnskólapróf. Stjórnendur og sérfræðingar fá 40% hærri laun en skrifstofufólk við afgreiðslu.

Mynd 2. Launaþróun grunnlauna eftir kyni.

launaþ2

Launaþróun eftir kynskiptingu starfsstétta

Myndin sýnir að kvennastörfin dragast afturúr karlastörfum og blönduðum karla- og kvennastörfum.
Kvennastörf hækka minnst annað árið í röð eins og sjá má hér á myndinni.

Mynd 3. Launaþróun heildarlauna eftir kynskiptingu starfsstétta.

launaþ starfs

Hér á mynd 4 má sjá hækkun launa eftir kynskiptingu starfstétta í prósentum talið.

Mynd 4. Launaþróun heildarlauna eftir kynskiptingu starfsstétta í % talið.

launaþ starfs2