Hæstu launin, lægstu launin
Hæstu og lægstu launin hjá SFR
Athyglisvert er að skoða þróun hæstu og lægstu launa hjá SFR eins og hún kemur fram í launakönnuninni. Laun þeirra 5% lægstu hækka töluvert á milli ára eða um 10-12% á meðan laun þeirra 5% sem hæst hafa launin lækka á milli ára um 12-13%. Þetta hefur í för með sér að það dregur töluvert saman á milli þeirra launahæstu og þeirra launalægstu. Í fyrra munaði tæplega 400 þúsund krónum á mánuði á launum þeirra 5% hæstu og 5% lægstu en nú munar um 300 þúsund á þessum hópum.

