Beint á leiðarkerfi vefsins

Fjárhagur heimilana

Staða heimilanna lakari en í fyrra

Í könnun SFR fyrir ári var spurt um fjárhag heimilisins og svo var einnig gert nú. Í ljós kemur að þeim félagsmönnum SFR fjölgar sem nota sparifé til að ná endum saman eins og sjá má á myndinni hér að neðan. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar er það nú rúmlega þriðjungur heimila félagsmanna SFR sem notar sparifé til að ná endum saman eða safnar  skuldum.

Á myndinni má einnig sjá samanburð við stöðu heimilanna í landinu skv. könnun Capacent í desember 2010 en myndin sýnir að staða heimila félagmanna SFR er þó nokkuð lakari en meðal almennings á þessum tíma. Verst er staðan hjá fólki á aldrinum 35 til 44 ára en þar er hlutfall þeirra sem safna skuldum hæst. Fjárhagur heimilisins tengist einnig skýrt launakjörum þannig að því lægri sem launin eru, því fleiri ganga á sparifé sitt og/eða safna skuldum.

fjárh. heim


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Launakönnun SFR » Launakönnun 2011 » Helstu niðurstöður 2011 » Fjárhagur heimilana