Viðhorf til launa
Ánægja með laun
Það dregur úr ánægju með laun þriðja árið í röð og er ánægjan nú svipuð og 2008.
Ríflega 18% svarenda eru ánægðir með launin nú, þeir voru 23% í fyrra og 27% árið þar áður.
Ánægja með laun eykst með hækkandi launum og til samræmis við það sýnir það sig að karlar eru ánægðari með laun en konur og stjórnendur og sérfræðingar eru ánægðari með laun sín en aðrar starfsstéttir.
Sanngirni launa
Félagsmenn telja um 407 þúsund vera sanngjörn laun, en talan var 409 þúsund í fyrra og 393 þúsund í hittið fyrra.
Ef litið er á svörun karla og kvenna má sjá að karlar telja að meðaltali sanngjörn laun vera um 486 þúsund á mánuði og konum finnst sanngjörn laun vera um 376 þúsund á mánuði.
Hlutfallslegur munur á raunverulegum launum og sanngjörnum launum minnkar hjá körlum, en stendur í stað hjá konum.

