Álag í vinnu
Vaxandi álag í vinnu
Álag í vinnu eykst á milli ára að mati félagsmanna SFR.
Ríflega 60% svarenda finnst sem álag hafi aukist í vinnunni á síðustu mánuðum, en fyrir ári voru það 56% svarenda sem töldu álag hafa aukist á síðustu mánuðum.
Konur segja frekar en karlar að álagið hafi aukist og yngra fólki finnst álagið frekar hafa aukist en því eldra.
Ef svörun við spurningunni er greind eftir atvinnugreinum sést að það er helst starfsfólk í starfsgreinunum:
Innheimtumenn ríkissjóðs, almannatryggingar og lánasjóður og starfsfólk við löggæslu, dómstóla og fangelsi sem telur að álag hafi aukist.
Álag í vinnu, síðustu mánuðir

