Launakönnun SFR 2011
Ný og enn stærri sameiginleg launakönnun SFR, St.Rv. og VR.
SFR og VR stéttarfélög hafa undanfarin ár staðið fyrir einni stærstu og veigamestu launa- og vinnumarkaðskönnun landsins. Henni er skipt í tvo hluta Stofnun ársins og Launakönnun félaganna. Launakönnunarhlutinn er ítarlegur og þar eru félagsmenn spurðir um laun og kjaratengd mál. Í ár er launakönnunin enn stærri þar sem Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar hefur bæst í hópinn.
Með könnunum er að skapast mikilvægur grunnur til samanburðar og rannsókna á launaþróun í landinu sem er afar mikilvægur jafnt fyrir launafólk, launþegahreyfingarnar og stjórnendur stofnana og fyrirtækja. Þar sem sams konar kannanir eru lagað fyrir VR er samanburðurinn jafnvel enn mikilvægari þar sem þá má fá mikilvægar upplýsingar um laun og launaþróun starfa á opinberum markaði og hinum almennta. Upplýsingar úr launakönnun eru síðan öflugt tæki fyrir félagsmenn til að hafa sem viðmiðun í launaviðtölum.
Launakannanir veita félagsmönnum kost á að bera laun og starfskjör sín saman á milli ára á milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins og fylgjast með launaþróun almennt eða í sinni starfsgrein.
Í niðurstöðum könnunarinnar er borðin saman þróun og dreifingu launa sem gefur félögunum m.a. tækifæri til að fylgjast með áhrifum efnahagssveiflna á laun og starfsskilyrði. Hægt er að fylgjast með hver meðalhækkun launa er á milli ára, hvort föst eða breytileg yfirvinna sé að aukast eða minnka, hvort einhver mismunur sé á þróun launa karla eða kvenna og hvort kynbundinn launamunur standi í stað, minnki eða aukist o.s.frv.
| Helstu niðurstöður | Launin | Samanburður við VR og St.Rv. |
Trúnaður
SFR vill árétta að alger trúnaður ríkir við framkvæmd könnunarinnar. Mjög ströngum reglum er fylgt af Capacent við úrvinnslu gagnanna og geymslu þeirra. Öllum úrtakslistum er síðan eytt þegar niðurstöður hafa verið birtar og verkefni formlega lokið.
Mikilvægt að taka þátt
Það skiptir félagsmenn og SFR miklu máli að sem flestir taki þátt í könnuninni. Launakönnunin veitir okkur öllum mikilvægar upplýsingar um þau laun og starfskjör sem félagsmenn okkar búa við. Einnig eru þessar upplýsingar mikilvægar í allri kjarabaráttu en á þeim vettvangi er nauðsynlegt að hafa sem best og nákvæmust gögn til að vinna með. Því hvetjum við alla okkar félagsmenn til að taka þátt.

