Samanburður SFR-VR
SFR og VR eru um margt ólík; félagsmenn VR starfa hjá fyrirtækjum á almennum markaði en félagsmenn SFR hjá ríkisstofnunum og sjálfseignarstofnunum. En það er fleira sem greinir hópana að, eins og sjá má á samanburðinum hér að neðan. Helstu breytingarnar frá því í fyrra utan launa eru þær að það dregur úr kynbundnum launamuni hjá báðum félögum, vinnuvikan styttist um ½ klst. hjá félagsmönnum SFR en um 1 ½ klst. hjá VR . Einnig fjölgar þeim SFR félögum nokkuð sem eru ánægðir með launakjörin en þeir voru 18,8% í fyrra.
|
|
VR | SFR |
| Meðaltal heildarlauna á mánuði* | 403.293 kr. | 320.044 kr. |
| Kynbundinn launamunur** | 10,1% | 12,7% |
| Lengd vinnuvikunnar | 43,1 klst. | 43,2 klst. |
| Hlutfall félagsmanna sem vinna fjarvinnu | 38,9% | 14,3% |
| Fjöldi tíma í fjarvinnu, meðaltal á viku | 7,5 klst. | 10,1 klst. |
| Hlutfall félagsmanna með háskólapróf | 27,2% | 8,6% |
| Meðalaldur félagsmanna | 41 ár | 48 ár |
| Starfsaldur í sama / sambærilegu starfi | 8,9 ár | 11,6 ár |
| Hlutfall félagsmanna með hlunnindi | 76,1% | 62,8% |
| Hlutfall félagsmanna sem eru ánægðir með launakjör sín | 54,4% | 27,3% |
**Að teknu tilliti til aldurs, vinnutíma (fjölda vinnustunda á viku), starfsaldurs, starfsstéttar og menntunar er munurinn 15%
**Að teknu tilliti til aldurs, vinnutíma (fjölda vinnustunda á viku), starfsaldurs, starfsstéttar og menntunar

