Beint á leiðarkerfi vefsins

Launakönnun 2009

Launakönnun SFR lítur nú dagsins ljós þriðja árið í röð, en félagið í samstarfi við VR hefur falið Capacent Gallup vinnslu könnunarinnar. Hvorki SFR né starfsmenn félagsins koma nálægt þeim gögnum sem unnið er með í könnuninni.

Launakönnun SFR veitir mikilvægar upplýsingar um starfsskilyrði starfsmanna ríkisins, til viðbótar því sem fram kemur í könnuninni Stofnun ársins. Félagsmenn eiga þess nú kost að bera laun og starfskjör sín saman á milli ára og fylgjast með launaþróun. Nú höfum við þriggja ára samanburð á þróun og dreifingu launa og könnunin gefur okkur tækifæri til að fylgjast með áhrifum efnahagssveiflna á laun og starfsskilyrði. Hægt er að sjá hver meðalhækkun launa er á milli ára, hvort föst eða breytileg yfirvinna sé að aukist eða minnka, hvort einhver mismunur sé á þróun launa karla eða kvenna og hvort kynbundin launamunur standi í stað, minnki eða aukist. Samanlagt gefa þessar upplýsingar skýra mynd af þeirri þróun sem er á launum og starfsskilyrðum félagsmanna SFR á milli ára.

 Helstu niðurstöður               Launatöflur             SFR - VR samanburður 

Trúnaður
SFR vill árétta að alger trúnaður ríkir við framkvæmd könnunarinnar. Mjög ströngum reglum er fylgt af Capacent við úrvinnslu gagnanna og geymslu þeirra. Öllum úrtakslistum er síðan eytt þegar niðurstöður hafa verið birtar og verkefni formlega lokið.

Mikilvægt að taka þátt
Það skiptir félagsmenn og SFR að sem flestir taki þátt í könnuninni.  Launakönnunin veitir okkur öllum mikilvægar upplýsingar um þau laun og starfskjör sem félagsmenn okkar búa við. Einnig eru þessar upplýsingar mikilvægar í allri kjarabaráttu en á þeim vettvangi er nauðsynlegt að hafa sem best og nákvæmust gögn til að vinna með. Því hvetjum við alla okkar félagsmenn til að taka þátt.


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Launakönnun SFR » Launakönnun 2009
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti