Beint á leiðarkerfi vefsins

SFR - VR

Árið 2008 er annað árið í röð sem félagsmenn SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu taka þátt í launakönnuninni sem er sambærileg við launakönnun sem VR hefur látið gera í mörg ár. Félögin eru um margt ólík. Félagsmenn SFR starfa hjá ríkisstofnunum og sjálfseignarstofnunum, en félagsmenn VR hjá fyrirtækjum á almennum markaði. En það er fleira sem greinir hópana að, eins og sjá má á samanburðinum hér að neðan.

VR_SFR_tafla.gif
* Að teknu tilliti til aldurs, vinnutíma (fjölda vinnustunda á viku), starfsaldurs,
starfsstéttar, menntunar og vaktaálags er munurinn 19,7%.
** Að teknu tilliti til aldurs, vinnutíma (fjölda vinnustunda á viku), starfsaldurs,
starfsstéttar, menntunar og vaktaálags.

 

Á fundi trúnaðarmanna SFR í september síðastliðnum voru niðurstöður úr nýrri launakönnun SFR kynntar, þar á meðal var kynntur samanburður milli SFR og VR félaga. Launakönnunin er unnin í samstarfi SFR og VR sem gefur möguleika á samanburði milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins, en VR hefur staðið fyrir svona könnunum í um áratug. Þegar félagsmenn þessara stéttarfélaga eru skoðaðir þá kemur fram að starfsmenn ríkisins eru að meðaltali með 20% lægri laun en starfsmenn almenna markaðarins þegar sambærilegar stéttir eru skoðaðar. Trúnaðarmannaráð SFR gerir þá sjálfssögðu kröfu, að launamunur milli starfsmanna ríkisins og starfsmanna á almennum markaði verði leiðréttur. Nálgast má glærur af kynningunni HÉR.


 

 

 


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Launakönnun SFR » Launakönnun 2008 » SFR - VR
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti