Beint á leiðarkerfi vefsins

Starfsmannasamtal og launaviðtal

Rúmur helmingur félagsmanna eða 50,7% fór í starfsmanna- og/eða launaviðtal (þ.m.t. ráðningarviðtal) á síðasta ári og er það um 7% aukning frá árinu þar á undan, sem er mjög ánægjulegt.

Þriðjungur þeirra sem fóru í starfsmanna- og/eða launviðtal sögðu að kjör sín og/eða starf hefði breyst til hins betra í kjölfarið og einungis tæp 20% undirbjuggu sig fyrir viðtalið með því að skoða launakannanir og nota upplýsingar úr þeim.

Þetta er of lágt hlutfall að mati SFR, sem hvetur alla félagsmenn til að skoða launakannanir vandlega og bera launakjör sín saman við það sem gerist í sambærilegum störfum. Launakannanir eru vopn í höndum launafólks sem það á að nota.


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Launakönnun SFR » Launakönnun 2008 » Helstu niðurstöður » Starfsmannasamtöl og launaviðtöl