Beint á leiðarkerfi vefsins

Menntun, meðalaldur og starfsaldur

Menntun félagsmanna eykst á milli ára
Í launakönnuninni kemur fram að menntunarstig félagsmanna hækkar á mili ára. Það fækkar um 5% í hópi þeirra sem eingöngu hafa lokið grunnskólaprófi eða grunnskólaprófi ásamt viðbótarmenntun. Hópurinn flyst upp því fram kemur að tæpur helmingur félagsmanna eða 48% hefur lokið framhaldsskóla. Þetta hlutfall var 43% árið 2007. 57% þessa hóps hafa einhverja viðbótarmenntun við framhaldsskólann.

Launakonnun_menntun.gif

Félagsmenn eldast
Þegar lífaldur félagsmanna er borinn saman milli ára kemur í ljós að lífaldur hefur hækkað um hálft ár. Í könnuninni 2007 voru félagsmenn að meðaltali 48 ára en 2008 eru þeir að meðaltali 48,5 ára. Þarna er nokkur munur á körlum og konum, þar sem karlmennirnir hafa elst um heilt ár á milli ára, eru núna að meðaltali 49,4 ára, en voru í fyrra að meðaltali 48,4 ára. Konurnar eru nú að meðaltali 48,1 árs en voru í fyrra 47,8 ára.

Starfsmenn  vinna lengi hjá hinu opinbera
Ef starfsaldur er skoðaður kemur í ljós að félagsmenn hafa að meðaltali unnið 11,9 ár í sama eða sambærilegu starfi en árið 2007 var þetta meðaltal 12,2 ár.

Draga má þá ályktun af þessum tölum að einhver nýliðun sé meðal starfsmanna ríkisins en að nýir starfsmenn séu þá að jafnaði 40 ára og eldri. Ungu fólki sem starfar hjá hinu opinbera fækkar samkvæmt þessu og er það umhugsunarefni. Spyrja má af hverju ungt fólk sækist ekki í ríkari mæli eftir því að starfa hjá ríkinu?


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Launakönnun SFR » Launakönnun 2008 » Helstu niðurstöður » Menntun, meðalaldur og starfsaldur