Beint á leiðarkerfi vefsins

Launamunur kynjanna

Því miður sýnir launakönnunin að launamunur kynjanna er viðvarandi og vaxandi vandamál hjá hinu opinbera. Miðað við félagsmenn í fullu starfi þá voru meðalheildarlaun félagsmanna 304.000 kr. á mánuði. Meðalheildarlaun karla voru 376.081 kr. og meðalheildarlaun kvenna 274.417 kr. Konur höfðu því samkvæmt launakönnuninni um 27% lægri heildarlaun er karlar.

En með því er ekki öll sagan sögð. Í heildarlaunum koma fram launaþættir sem skýra að hluta til hærri heildarlaun karla. Það eru þættir svo sem aldur, vinnutími, eftirvinna o.s.frv. Til að fá rétta mynd af því hver raunverulegur launamunur er þarf að leiðrétta samanburðinn fyrir þessum þáttum. Þegar það hefur verið gert stendur eftir óútskýrður launamunur upp á 17,2%. Þetta er veruleg aukning frá fyrri könnun.

Í könnuninni í ár var vaktaálagi bætt við sem skýringaþætti við greininguna á launamun kynjanna, hér nefnt aðferð A. Með aðferð A verður óútskýrður launamunur í ár 17,2% en var á síðasta ári 14,3%. Ef aðferðinni sem notuð var í fyrra, hér kölluð aðferð B væri beitt núna, þá kæmi fram að óútskýrður launamunur nú væri 18,3% í stað 14,7% í fyrra.

Munin á aðferðunum má sjá í eftirfarandi töflu

Aðferð A Aðferð B 

Tekið tillit til aldurs, vinnutíma (fjölda vinnustunda á viku), starfsaldurs, starfsstéttar, menntunar og vaktaálags:

2007: 14,3% launamunur
2008: 17,2% launamunur
2,9 prósentustiga aukning á milli ára

Tekið tillit til aldurs, vinnutíma (fjölda vinnustunda á viku), starfsaldurs, starfsstéttar og menntunar:

2007: 14,7% launamunur
2008: 18,3% launamunur
3,6 prósentustiga aukning á milli ára

 


 
 


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Launakönnun SFR » Launakönnun 2008 » Helstu niðurstöður » Launamunur kynjanna