Hlunnindi
Um 63% félagsmanna fá einhver hlunnindi á vinnustað. Algengastir eru líkamsræktarstyrkir en rúmlega 40% félagsmanna fá styrk vegna líkamsræktar. Þar á eftir koma styrkir og hlunnindi vegna fræðslumála.
37% félagsmanna hafa hins vegar engin hlunnindi.
Karlar eru líklegri en konur til að fá hlunnindi en 71% karla fær einhver hlunnindi á móti 60% kvenna sem njóta einhverra hlunninda.
Menntun, starfsstétt og atvinnugrein hefur líka áhrif en stjórnendur og sérfræðingar, sérhæft starfsfólk og sölu- og afgreiðslufólk er líklegra til að fá hlunnindi en aðrar starfsstéttir. Einnig eru þeir sem hafa lengri menntun líklegri til að hafa hlunnindi en þeir sem hafa styttri formlega menntun.
Athyglisvert er einnig að atvinnugrein skiptir miklu máli og starfsmenn í heilbrigðis og félagsþjónustu og í mennta og menningarstofnunum er ólíklegra til að fá hlunnindi en í starfsmenn í öðrum atvinnugreinum.

