Launaþróun
Meðallaun
Meðalgrunnlaun SFR félaga í febrúar 2008 eru 252 þúsund og meðalheildarlaunin 304 þúsund krónur. Á milli áranna 2007 og 2008 hækkuðu grunnlaun félagsmanna að meðaltali um 14% og heildarlaun um 11%.
Á sama tímabili hækkuðu kjarasamningsbundin laun um 5,26% sem skýrist af 3,2% hækkun launa frá og með 1. maí 2007 og 2% hækkun á launatöflu um áramót 2007-2008.
Það má því segja að heildarlaun félagsmanna SFR hafi hækkað um 6 prósentustig umfram kjarasamningsbundnar hækkanir á árinu og grunnlaun að sama skapi hækkað um 9 prósentustig umfram samningsbundnar hækkanir.
Launaþróun
Í launakönnuninni 2007 kom fram að 19% félagsmanna voru með undir 200 þúsund krónur í heildarlaun á mánuði. Það hefur verulega fækkað í þessum hópi og í ár eru um 9% félagsmanna með heildarlaun undir þeirri upphæð á mánuði. Sömuleiðis hefur fjölgað í hópi þeirra félagsmanna sem hafa yfir 400 þúsund í mánaðarlaun. Í fyrra voru það 9% félagsmanna en nú eru það tæp 17% félagsmanna sem hafa yfir 400 þúsund í heildarlaun á mánuði.
Samanburður á milli ára sést hér í töflunum að neðan.
Hæstu og lægstu launin
Ef litið er til þeirra sem lægst hafa launin má sjá að 5% félagsmanna hafa 157.000 kr. eða minna á mánuði í grunnlaun og 170.000 kr. eða minna í heildarlaun. 5% efstu hafa nú í febrúar meira en 478.000 kr. í grunnlaun og meira en 567.000 kr. í heildarlaun.
Grunnlaun
| < 5% | Miðgildi | Meðaltal | > 5% | |
| 2007 | 143.000 | 206.000 | 222.000 | 414.000 |
| 2008 | 157.000 | 232.000 | 252.000 | 478.000 |
| Hækkun | 10% | 13% | 14% | 15% |
Heildarlaun
| < 5% | Miðgildi | Meðaltal | > 5% | |
| 2007 | 153.000 | 254.000 | 274.000 | 514.000 |
| 2008 | 170.000 | 282.000 | 304.000 | 567.000 |
| Hækkun | 11% | 11% | 11% | 10% |
Launamunur milli hæstu og lægstu er svipaður og á síðasta ári
Í prósentum talið hækka laun þeirra sem hæstu launin hafa heldur minna en laun þeirra lægst launuðu, en ef krónutalan er skoðuð má sjá að bilið á milli þeirra hæstu og lægstu eykst Þeir sem eru í hópi 5% launahæstu félagsmanna SFR eru með um 3,35 sinnum hærri heildarlaun en þeir sem eru í hópi 5% lægst launuðu félagsmannanna sem er svipað og á síðasta ári.

