Launakönnun 2008
SFR stendur nú í annað sinn að launakönnun meðal félagsmanna sinna. Launakönnunin er framkvæmd samhliða Stofnun ársins og er það Capacent sem hefur framkvæmdina með höndum. Hvorki SFR né starfsmenn félagsins koma nálægt þeim gögnum sem unnið er með í könnuninni.
Við síðustu launakönnun kom í ljós hversu mikilvægt er að standa reglulega að könnun sem þessari. Í launakönnuninni koma fram mjög mikilvægar upplýsingar um hvaða laun er í raun verið að greiða og hvernig launin eru samsett. Ennfremur gefur launakönnunin afar mikilsverðar upplýsingar um laun eftir starfsstéttum og um launamun kynjanna.
Heildarskýrslu má nálgast HÉR.
11% hækkun heildarlauna á milli áraGrunnlaun félagsmanna SFR hafa hækkað um 14% og heildarlaun hafa hækkað um 11% á milli áranna 2007 og 2008. Á sama tíma hefur launavísitala Hagstofunnar fyrir opinbera starfsmenn hækkað um 6,1%. Hækkunin hjá félagsmönnum SFR er því töluvert meiri en almennt hjá opinberum starfsmönnum á tímabilinu.
Launamunur kynjanna
því miður sýnir launakönnunin nú að launamunur kynjanna er viðvarandi og vaxandi vandamál hjá hinu opinbera. Kynbundinn launamunur mælist nú 17,2% þegar búið er að taka tillit til áhrifaþátta á laun og hefur launamunurinn vaxið á milli ára.
Hér að neðan er að finna nánari umfjöllun um niðurstöðurnar og einnig er fjallað um Launakönnun SFR í SFR blaðinu.
Trúnaður
SFR vill árétta að alger trúnaður ríkir við framkvæmd könnunarinnar. Mjög ströngum reglum er fylgt af Capacent við úrvinnslu gagnanna og geymslu þeirra. Öllum úrtakslistum er síðan eytt þegar niðurstöður hafa verið birtar og verkefni formlega lokið.
Er mikilvægt fyrir félagsmenn SFR að taka þátt?
Það skiptir öllu máli að sem flestir SFR félagar taki þátt í könnuninni. Í allri kjarabaráttu er nauðsynlegt að hafa sem best og nákvæmust gögn til að vinna með. Launakönnunin veitir okkur öllum mikilvægar upplýsingar um þau laun og starfskjör sem félagsmenn okkar búa við. Því hvetjum við alla félagsmenn að taka þátt í könnuninni.
Vinningsnúmer í happdrætti 2008.



















