Beint á leiðarkerfi vefsins

Launakönnun 2007

Launakönnun SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu 2007.

Helstu niðurstöður má nálgast HÉR.

Meðallaun félagsmanna - Í töflu 1 eru gefin upp meðallaun starfsmanna eftir ýmsum bakgrunnsþáttum, þó aðallega eftir atvinnugrein og starfsstétt. Meðaltal er ekki birt nema það samanstandi af sex eða fleiri svarendum. Þegar færri en sex eru á bak við meðaltal birtist eyða í viðkomandi reit í töflum.

Launatölur í töflum með heildar- og grunnlaunum mánaðar byggjast á svörum starfsfólks í 70- 100% starfshlutfalli. Laun starfsfólks í 70-99% starfshlutfalli eru uppreiknuð miðað við 100% starf. Launatölur í töflum með árslaunum 2006 byggjast á svörum starfsfólks sem var í 100% starfi allt árið 2006.

  • Launatafla 1.      Meðallaun svarenda eftir starfsstétt og kyni.
  • Launatafla 2.      Grunnlaun eftir starfsstétt og bakgrunnsþáttum.
  • Launatafla 3.      Heildarlaun eftir starfsstétt og bakgrunnsþáttum.
  • Launatafla 4.      Meðallaun eftir atvinnugrein.
  • Launatafla 5.      Grunnlaun eftir atvinnugrein og bakgrunnsþáttum.
  • Launatafla 6.      Heildarlaun eftir atvinnugrein og bakgrunnsþáttum.
  • Launatafla 7.      Meðalárslaun eftir starfsstétt og kyni.
  • Launatafla 8.      Heilbrigðis- og félagsþjónusta. Grunnlaun og heildarlaun.
  • Launatafla 9.      Innheimtumenn ríkissjóðs, almannatryggingar og lánasjóðir. Grunnlaun og heildarlaun.
  • Launatafla 10.    Landbúnaður, orkustofnanir og skógrækt. Grunnlaun og heildarlaun.
  • Launatafla 11.    Löggæsla, dómstólar og fangelsi. Grunnlaun og heildarlaun.
  • Launatafla 12.    Mennta- og menningarstofnanir. Grunnlaun og heildarlaun.
  • Launatafla 13.    Rannsóknar- og eftirlitsstofnanir. Grunnlaun og heildarlaun.
  • Launatafla 14.    Verslunar- og sölustörf. Grunnlaun og heildarlaun.
  • Launatafla 15.    Önnur opinber starfsemi og þjónusta. Grunnlaun og heildarlaun.

Auk meðaltals eru einnig birt miðgildi, 25% mörk og 75% mörk í töflunum. Þær tölur gefa til kynna launadreifingu í  viðkomandi hópi. Miðgildi skiptir svarendahópnum í tvennt, helmingur svarenda er með lægri laun en miðgildið segir til um og helmingur þeirra með hærri laun. Talan í dálknum 25% mörk gefur til kynna að fjórðungur svarenda er með lægri laun en þau laun sem birtast í dálknum og eru þá 75% svarenda með hærri laun. Talan í dálknum 75% mörk gefur hins vegar til kynna að fjórðungur svarenda er með hærri laun en tilgreind eru í dálknum á meðan 75% svarenda eru með lægri laun.

Á grundvelli þessara talna, meðaltals, miðgildis, 25% marka og 75% marka má meta launadreifingu með eftirfarandi hætti. Því breiðara sem bilið er á milli 25% marka, miðgildis og 75% marka, því meiri dreifing er á launum viðkomandi hóps. Því breiðara sem bilið er má segja að erfiðara sé að gera sér grein fyrir hvaða laun eru algengust í viðkomandi hópi. Aftur á móti eru launin einsleitari í hópnum eftir því sem bilið milli þessara talna er þrengra og er þá auðveldara að gera sér grein fyrir á hvaða bili algengast er að laun séu í viðkomandi hópi. Að auki er hægt að athuga mismun á meðaltali og miðgildi. Ef meðaltal er hærra en miðgildi eru að öllum líkindum nokkrir svarendur í hópnum sem eru með töluvert hærri laun en meginþorri hópsins og hífa þannig meðaltalið upp. Ef meðaltalið er lægra en miðgildið eru að öllum líkindum nokkrir svarendur sem eru með töluvert lægri laun en meginþorri hópsins og draga þannig meðaltalið niður. Ef miðgildi og meðaltal eru á svipuðum slóðum má segja að ákveðið jafnvægi ríki í launadreifingu hópsins.

Samhliða könnuninni Stofnun ársins tóku félagsmenn SFR nú í fyrsta sinn þátt í launakönnun eins og VR hefur gert undanfarin ár. Launakönnunin er framkvæmd á sama tíma og Stofnun ársins og fengu félagsmenn því senda tvo spurningarlista. Niðurstöður launakönnunarinnar eru birtar nú í september og eru liður í undirbúningi fyrir komandi kjarasamninga, en núverandi kjarasamningur gildir til 1. maí 2008.


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Launakönnun SFR » Launakönnun 2007
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti