Beint á leiðarkerfi vefsins

Launakönnun SFR 2010

SFR og VR stéttarfélög standa árlega fyrir einni stærstu og veigamestu vinnumarkaðskönnun landsins. Henni er skipt í tvo hluta Stofnun ársins og Launakönnun félaganna.  Launakönnunarhlutinn er ítarlegur og þar eru félagsmenn spurðir um laun og kjaratengd mál og eru þær niðurstöður nú kynntar bæði í SFR blaðinu og hér á heimasíðu SFR.

Eins og fram kemur hér að ofan er um að ræða stærstu vinnumarkaðskönnun landsins sem er einstök að því leyti að þar er hægt að bera saman laun í opinbera geiranum og þeim almenna. Þetta er í fjórða sinn sem SFR tekur þátt í þessari könnun í samstarfi við VR, en Capacent Gallup var eins og árin á undan falin vinnsla könnunarinnar.

Launakönnun SFR veitir mikilvægar upplýsingar um laun og starfsskilyrði félagsmanna SFR hjá ríki, sjálfseignarstofnunum og opinberum fyrirtækum, til viðbótar því sem fram kemur í könnuninni Stofnun ársins. Félagsmenn geta því núna borið laun sín og starfskjör saman á milli ára og fylgst með launaþróuninni. Nú höfum við fjögurra ára samanburð á þróun og dreifingu launa og könnunin gefur okkur tækifæri til að fylgjast með áhrifum efnahagssveiflna á laun og starfsskilyrði. Hægt er að sjá hver meðalhækkun launa er á milli ára, hvort föst eða breytileg yfirvinna sé að aukast eða minnka, hvort einhver mismunur sé á þróun launa karla eða kvenna og hvort kynbundinn launamunur standi í stað, minnki eða aukist. Samanlagt gefa þessar upplýsingar skýra mynd af þróun launa og starfsskilyrðum félagsmanna SFR á milli ára.

Helstu niðurstöður       

Launatöflur      

SFR og VR samanburður       

Trúnaður
SFR vill árétta að alger trúnaður ríkir við framkvæmd könnunarinnar. Mjög ströngum reglum er fylgt af Capacent við úrvinnslu gagnanna og geymslu þeirra. Öllum úrtakslistum er síðan eytt þegar niðurstöður hafa verið birtar og verkefni formlega lokið.

Mikilvægt að taka þátt
Það skiptir félagsmenn og SFR miklu máli að sem flestir taki þátt í könnuninni. Launakönnunin veitir okkur öllum mikilvægar upplýsingar um þau laun og starfskjör sem félagsmenn okkar búa við. Einnig eru þessar upplýsingar mikilvægar í allri kjarabaráttu en á þeim vettvangi er nauðsynlegt að hafa sem best og nákvæmust gögn til að vinna með. Því hvetjum við alla okkar félagsmenn til að taka þátt.


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Launakönnun SFR » Launakönnnun 2010