Beint á leiðarkerfi vefsins

Launakönnun SFR

SFR og VR stéttarfélög standa árlega fyrir einni stærstu og veigamestu vinnumarkaðskönnun landsins. Henni er skipt í tvo hluta Stofnun ársins og Launakönnun félaganna.  Launakönnunarhlutinn er ítarlegur og þar eru félagsmenn spurðir um laun og kjaratengd mál og eru þær niðurstöður nú kynntar bæði í SFR blaðinu og hér á heimasíðu SFR.

Í febrúar ár hvert er framkvæmd launakönnun SFR samhliða vali á Stofnun ársins. Þetta er viðamesta könnun á vinnuumhverfi í íslenskum stofnunum. Niðurstöðurnar eru stjórnendum mikilvægur mælikvarði á það hvað vel er gert og hvað má betur fara og starfsmenn stofnana fá tækifæri til að segja stjórnendum hvað þeim finnst um vinnustaðinn. Upplýsingar úr launakönnun eru síðan öflugt tæki fyrir félagsmenn til að hafa sem viðmiðun í launaviðtölum. Þetta er í fjórða sinn sem launakönnun er framkvæmd meðal SFR félagsmanna.

Mikilvægt er fyrir stéttarfélög að fylgjast með launaþróun og er launakönnun ein aðferð til þess. Þar sem um er að ræða sambærilega könnun og VR gerir þá gefst þarna tækifæri til að bera saman þróunina á almennum vinnumarkaði og hjá hinu opinbera. Niðurstöður verða kynntar á haustdögum.


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Launakönnun SFR
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti