Beint á leiðarkerfi vefsins

SFR.is

SFR.is

Kannanir SFR

Vinnumarkaðskannanir SFR er mikilvægt og öflugt vopn í baráttunni fyrir bættum kjörum og hefur SFR staðið fyrir vali á stofnun ársins síðastliðin þrjú ár en launakönnun í tvö ár. Mikilvægt er fyrir stéttarfélög að fylgjast með launaþróun og er launakönnun ein aðferð til þess. Þar sem um er að ræða sambærilega könnun og VR gerir þá gefst þarna tækifæri til að bera saman þróunina á almennum vinnumarkaði og hjá hinu opinbera.

Niðurstöður í vali SFR á Stofnun ársins verða kynntar þann 8. maí næstkomandi á netinu og í SFR blaðinu sem kemur út þann dag. En niðurstöður í launakönnun verða kynntar í september.

Vinningsnúmer í happdrættinu 2009 má nálgast HÉR.

Í febrúar ár hvert er framkvæmd launakönnun SFR og samhliða er Stofnun ársins valin. Þetta er viðamesta könnun á vinnuumhverfi í íslenskum stofnunum. Niðurstöðurnar eru stjórnendum mikilvægur mælikvarði á það hvað vel er gert og hvað má betur fara og starfsmenn stofnana fá tækifæri til að segja stjórnendum hvað þeim finnst um vinnustaðinn. Upplýsingar úr launakönnun eru síðan öflugt tæki fyrir félagsmenn til að hafa sem viðmiðun í launaviðtölum. Þetta er í fjórða sinn sem val á Stofnun ársins fer fram og þriðja sinn sem launakönnun er framkvæmd meðal SFR félagsmanna.


Á döfinni

Til félagsmanna

2. Mars 2010

Staðreyndir um hamingju - glærur

Hér má nálgast glærur af vel sóttum fyrirlestri Páls Matthíassonar geðlæknis þar sem hann sagði frá nokkrum staðreyndum um hamingjuna.

1. Mars 2010

Orlofsblað SFR í vinnslu

Starfsmenn SFR leggja nú nótt við dag að klára orlofs-blað SFR. Stefnt er að því að blaðið berist félagsmönn-um í annarri viku mars en umsóknarfrestur fyrir sumar-úthlutun er til 25. mars.

27. Janúar 2010

Komdu í kór!

Maí kórinn er kór BSRB félaga og er opinn öllum félögum í aðildarfélögum BSRB, vinum þeirra og vandamönnum. Kórfélagar hittast einu sinni í viku á þriðjudagskvöldum kl. 20:15 í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og syngja saman fjölbreytt lög undir styrkri stjórn Svövu Kristínar Ingólfsdóttur. Í hópnum er vant söngfólk og óvant, bæði karlar og konur. - Allir eru velkomnir.


 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré English