Beint á leiðarkerfi vefsins

Er verið að greiða þér fyrir yfirvinnu til samræmis við kjarasamning

Ef starfsmaður er í fullu starfi er vikuleg vinnuskylda 40 klst. á viku og öll vinna umfram það er yfirvinna.

Hjá vaktavinnufólki er eðlilegt að vinnuskyldan jafnist út á tveimur vikum. Í sumum tilvikum er þó um lengri vaktarúllur að ræða og þá er vikuleg vinnuskylda fundin út með því að deila vikufjöldanum í heildarvinnuskilin á tímabilinu.

Þar sem ekki er hægt að koma við föstu vaktakerfi er skylt að leggja fram vaktskrá með a.m.k. 1 mánaðar fyrirvara. Þann 1. ágúst á því að liggja fyrir vaktskrá septembermánaðar og svo koll af kolli. Vaktskrá á að fullnægja vinnuskyldu starfsmanna. Þ.e.a.s. vaktaplanið á að vera til samræmis við starfshlutfall viðkomandi starfsmanns.
Það má ekki breyta framlagðri vaktskrá án samþykkis starfsmanns.

Eftir að vaktskrá hefur verið lögð fram er óheimilt að breyta henni án samþykkis þeirra starfsmanna sem breytingin nær til. Það þýðir að yfirmaður getur ekki breytt vakt á vaktskrá án þess að ráðfæra sig fyrst við viðkomandi starfsmann og fá heimild til breytingar hjá honum.

  • Ef vaktskrá er breytt með 7 daga fyrirvara eða minna skal greiða viðkomandi starfsmanni aukalega 2 klst. í yfirvinnu fyrir vaktina.
  • Ef vaktskrá er breytt með skemmri fyrirvara en 24 klst. skal greiða viðkomandi starfsmanni aukalega 3 klst. í yfirvinnu fyrir vaktina.

Yfirvinna, aukavakt
Alla vinnu umfram daglega vinnuskyldu/ vakt á að greiða með yfirvinnukaupi. Það sama á við um hlutavinnufólk sem uppfyllt hefur vinnuskyldu sína. Ekki er heimilt að flytja til vinnuskyldu starfsmanns til að bregðast við tilfallandi yfirvinnu.

Aukavakt á því að greiða með yfirvinnukaupi en ekki vaktaálagi sama á hvaða tíma sólarhringsins unnið er.

  • Heimilt er í undantekningartilfellum, með fyrirvara og í samráði við starfsmann að auka starfshlutfall starfsmanns í hlutavinnu ef bregðast þarf við aðstæðum sem vara a.m.k. í 1 mánuð (vegna sumarorlofa, langvarandi veikinda og fl). Þetta á ekki við um tilfallandi aukavinnu.

Frí á móti yfirvinnu
Heimilt er starfsmanni, með samkomulagi við vinnuveitanda að safna allt að 5 frídögum á ári vegna yfirvinnu, á þann hátt að yfirvinnutímar komi til uppsöfnunar en yfirvinnuálagið er greitt við næstu reglulegu útborgun.

  • Starfsmaður fær þá 8 tíma frí fyrir 8 tíma yfirvinnu og yfirvinnuálagið er greitt við næstu reglulegu útborgun, og er það 44,44% af tímakaupi í yfirvinnu.
  • Ef samkomulag er um á milli aðila má einnig veita 1,8 klst. í frí fyrir hvern yfirvinnutíma og greiðsla yfirvinnuálags fellur þá niður.

Gæta verður þess þegar samið er um frí á móti yfirvinnu að vinnuveitandi geti veitt starfsmönnum það frí sem þannig safnast innan árs svo ekki komi til uppsöfnunar á óteknu fríi.

Samningar við starfsmenn sem fela í sér aðrar og minni greiðslur fyrir yfirvinnu skv ofansögðu eru undirboð á kjarasamningi og því óheimilir.


Slóðin þín:

Fréttir » Útgáfa » SFR-blaðið » Greinar » Yfirvinnugreiðslur í kjarasamningi