Ríkið ber ábyrgð á starfsmönnum sínum
Staða félagsmanna SFR innan málefna fatlaðra enn óbreytt - ólíðandi ástand
- Alma Lísa Jóhannsdóttir hjá SFR skrifar
Þann 6. júlí síðastliðinn gerðu ríkið og sveitarfélögin með sér samkomulag um fjárhagsramma tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga. Ljóst er að lítill tími er til stefnu en heildarsamningur á milli ríkis og sveitarfélaga um breytingarnar ásamt nauðsynlegum frumvörpum á að liggja fyrir nú um miðjan september og tilfærslan síðan að fara fram um næstu áramót. Í heildarsamningnum verða m.a. skilgreind heildarmarkmið og forsendur yfirfærslunnar, sem og staða og réttindi starfsmanna.
Í lok ágúst var staða félagsmanna SFR innan málefna fatlaðra enn óbreytt. Samband íslenskra sveitarfélaga heldur fast í afstöðu sína gagnvart félagsmönnum SFR og ætlar ekki að semja við félagið. Engu að síður kemur fram í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga að það sé gert með fyrirvara um: „...ásættanlega lausn varðandi ófrágengin atriði, svo sem aðild starfsmanna að stéttarfélögum"...
Afstaða félagsmanna SFR liggur fyrir. Stöðu starfsmanna þarf að skýra strax. Á undanförnum mánuðum hafa Samband íslenskra sveitarfélaga og ríkið kastað boltanum sín á milli og hvorugur aðilinn hefur viljað taka ábyrgð á að tryggja réttindi og kjör liðlega 1200 félagsmanna SFR innan málaflokksins.
Ný skýrsla Ríkisendurskoðunar um þjónustu við fatlaða vekur margar áleitnar spurningar um hvort tilfærsla málaflokksins verði framkvæmd á réttum grunni þar sem nægilegt fjármagn til hennar verði tryggt. Fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar að hún telur sig ekki geta lagt mat á hvort eigi að færa þjónustu við fatlaða á milli stjórnsýslustiga, þar sem hana skorti gögn og upplýsingar. Ríkisendurskoðun telur sig heldur ekki geta metið hvort þjónustan er skilvirk, árangursrík eða í samræmi við lög og segir áfram í skýrslunni að fjárveitingar til
málaflokksins séu ekki í neinu samræmi við þjónustuþörfina. Í ljósi þessa er ástæða til að hafa áhyggjur af stöðu mála en maður skyldi ætla að búið væri að meta ávinning af flutningnum - að slíkt mat væri forsenda hans.
Það er skýlaus krafa SFR að ríkið taki af skarið, að fjármálaráðherra axli þá ábyrgð sína sem æðsti stjórnandi ríkisstarfsmanna og afgreiði stöðu félagsmanna SFR innan málaflokksins með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Ríkið ber ábyrgð á starfsmönnum sínum og á að tryggja að réttarstaða og kjör þeirra séu tryggð með lögum. Félagsmenn SFR eiga að búa við sömu kjör og aðrir starfsmenn þjónustunnar, jafnræði á meðal starfsmanna innan þjónustunnar er forsenda gæða. Forsenda þess að yfirfærslan muni takast er að tryggja að þekking og reynsla
starfsmanna verði áfram nýtt innan þjónustunnar og að sveitarfélögin fái að njóta góðs af þeim góðu starfsmönnum sem starfa nú þegar innan hennar.

