Beint á leiðarkerfi vefsins

Kyrr! - Sittu! - Leggstu!

ArniStJonsson_2006_a„SÍS ætti að vita að vænlegasta leiðin til árangurs er að vera í góðu samráði við starfsmenn. Það kann ekki góðri lukku að stýra ef koma á fram við þá eins og hunda.“ Þetta kemur fram í grein eftir Árna St. Jónsson, formann SFR, sem birtist í Morgunblaðinu 8. nóv. 2010 þar sem hann fjallar um stöðuna í starfsmannamálum við yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.

 

 

Flytja á málefni fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga um áramótin. Um er að ræða 1500 starfsmenn málaflokksins, sem flytjast milli atvinnurekenda með lögum. Yfir þessu verkefni er verkefnisstjórn sem stýrir framkvæmdinni, en félagsmálaráðuneytið ber ábyrgð á verkinu fyrir hönd ríkisins.

Ýmsar nefndir starfa undir verkefnisstjórninni og þar á meðal samráðsnefnd um starfsmannamál. Ekki var gert ráð fyrir því í upphafi að sérstaklega yrði fjallað um málefni starfsmanna við yfirflutninginn. Stéttarfélög gerðu alvarlega athugasemdir við það og var því samráðsnefndin sett á laggirnar.

Sami maður gegnir starfi formanns verkefnastjórnar og starfsmannanefndarinnar. Slíkt fyrirkomulag gæti verið til þess fallið að tryggja faglegt starf og að hagsmunir starfsmanna séu ekki fyrir borð bornir. Vinna í samstarfsnefndinni gekk vel framan af. Ekki voru aðilar þó að öllu leyti sammála. Deilur stóðu meðal annars um kröfu SFR stéttarfélags um að við yfirflutninginn nyti þessi starfshópur sem um ræðir, sömu mannréttinda og opinberir starfsmenn höfðu árin 1990 og 1996 við yfirflutning á heilbrigðisþjónustu (1990) og grunnskólans (1996). Það þýðir einfaldlega að núna fengju starfsmann að velja um aðild að stéttarfélagi líkt og starfsmenn fengu þá. Hollt er að hafa í huga að þjóðfélagsþegnar eiga að standa jafnir að lögum! Það á einnig við um fjölmennar kvennastéttir sem ekki eru allt of sælar af launakjörum sínum!

Vinnan í samráðsnefndinni gekk ágætlega framan af. Í desember 2009 voru komin grunndrög að skýrslu. Unnið hafði verið vel og lengi með þann texta sem átti að skýra rétt starfsmanna til að njóta sömu mannréttinda og fólk hafði 1990 og 1996. Á þeim tímapunkti óskuðu fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) eftir að gert yrði hlé á störfum nefndarinnar. Næsti fundur var boðaður í janúar 2010. Í stað þess að halda vinnunni áfram þar sem frá var horfið, þá lögðu fulltrúar SÍS fram tillögu sem tók algerlega fyrir að starfsmenn gætu valið sér stéttarfélag. Við þessa fáheyrðu uppákomu slitnaði upp úr starfi nefndarinnar.

Nefndin var aftur kölluð til stafa nú í haust. Væntingar stóðu til þess að hægt væri að vinna að réttindamálum starfsmanna. Á fundi nefndarinnar þann 5. nóvember 2010 ákvað SÍS að skipta út fulltrúum sínum og í þeirra stað mætti Karl Björnsson framkvæmdastjóri SÍS. Þar kynnti hann þá skoðun sína að nefndin hefði ekkert hlutverk lengur! Nefndin hefði runnið út á tíma. Í væntanlegum lagasetningum og samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga yrði ekkert tillit tekið til þeirra áherslna sem nefndin hefði. Ennfremur lagði Karl Björnsson fram bækling sem SÍS hafði einhliða sent út tveimur sólarhringum áður, þar sem lýst er því umhverfi sem starfsmenn eiga að sætta sig eftir flutninginn. Við hreppaflutninga hér áður fyrr var svipað upp á teningnum. Menn voru ekki spurðir - þeim var bara sagt hvernig hlutirnir væru og hvar þeir yrðu settir niður.

Það er dapurleg staða árið 2010 ef sveitarfélögin hafa það viðhorf til væntanlegra starfsmanna, að þeir eigi að sitja og standa eftir geðþótta hvers sveitarfélags fyrir sig. Á þjóðfundinum greindi þjóðin sjálf hver þau gildi eru sem eigi að vera leiðarljós inn í framtíðina: heiðarleiki, virðing, jafnrétti og réttlæti voru þar efst á blaði. Væru stjórnmálamenn að vinna eftir þessum gildum nú, væri löngu búið að ganga frá öllum undirbúningi að flutningi starfsmanna milli ríkisins og sveitarfélaganna. Menn hefðu einfaldlega sagt; núna tryggjum við starfsmönnum að minnsta kosti ekki lakari aðstæður og kjör en gert var 1990 og 1996. Í stað þess að fara þá einföldu og sjálfsögðu leið þá stíga forvígismenn SÍS fram og segja að hvert sveitarfélag muni koma málum starfsmanna fyrir í nútíð og framtíð eftir eigin geðþótta. Árið 2010 ætti að vera ár jafnræðis og jafnréttis. SÍS ætti að vita að vænlegasta leiðin til árangurs í þessu mikilvæga verkefni er að vera í góðu samráði við starfsmenn. Það kann ekki góðri lukku að stýra ef koma á fram við þá eins og hunda.



Slóðin þín:

Fréttir » Útgáfa » SFR-blaðið » Greinar » Kyrr! - Sittu! - Leggstu!