Til félagsmanna
1. febrúar 2012
Skráning í Gott að vita námskeið og fyrirlestra

Nú er dagskrá fyrir námskeið og fyrirlestra Gott að vita á vorönn tilbúin og hófst skráning 1. febrúar kl. 9. Ef þú ert að skrá þig inn í fyrsta sinn í námskeiðsskráningarkefi SFR þá velur þú flipann Nýskráning og skráir inn umbeðnar upplýsingar, hugar vel að því að netfang sé rétt stafsett og býrð til þitt eigið lykilorð. Þá færðu tölvupóst með tengli sem þú verður að smella á til að skráning verði virk.
Ef þú hefur áður skráð þig inn og gleymt lykilorðinu þá geturðu óskað eftir því að fá það sent til þín í tölvupósti neðst undir flipanum Þegar skráður notandi.

