Til félagsmanna
30. janúar 2012
Aðalfundur SFR verður haldinn 22. mars 2012
Aðalfundur SFR verður haldinn fimmtudaginn 22. mars kl. 17 að Grettisgötu 89. Á dagskrá eru venjubundin aðalfundarstörf svo sem skýrsla stjórnar, reikningar félagsins, ákvörðun um iðgjald og fleira. Þá verður kynnt stjórnarkjör en kosið er á tveggja ára fresti. Einnig verður kosið í stjórni sjóða. Þá verða teknar fyrir lagabreytingar. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á aðalfund.
Lögum SFR má aðeins breyta á aðalfundi og verða tillögur þar að lútandi að berast til félagsstjórnar og þeirra skal jafnframt getið í fundarboði. Tillögur til lagabreytinga skulu liggja frammi á skrifstofu félagsins 10 sólarhringum fyrir aðalfund. Laganefnd sem Félagsráð SFR skipaði í september 2011 er að störfum og munu tillögur nefndarinnar verða kynntar fyrir trúnaðarmannaráði SFR þann 8. febrúra nk. og í kjölfarið settar inn á vefinn.
Uppstillinganefnd sem Félagsráð SFR skipaði einnig í september 2011 mun líka kynna tillögur sínar fyrir trúnaðarmannaráði þann 8. febrúar nk. En samkvæmt lögum félagsins skal hún leggja tillögur sínar fyrir trúnaðarmannaráð eigi síðar en 40 sólarhringum fyrir aðalfund. Trúnaðarmannaráð skal afgreiða tillögur uppstillingarnefndar og verða þær tillögur ráðsins. Heimilt er 50 eða fleiri félagsmönnum að gera tillögur um einn eða fleiri stjórnarmenn. Skulu þær vera skriflegar og berast stjórn félagsins a.m.k. 25 sólarhringum fyrir aðalfund. Öllum tillögum skal fylgja skriflegt samþykki þeirra sem tillaga er gerð um. Sjá nánar í 3. kafla í lögum SFR.

