Til félagsmanna
17. janúar 2012
Styrkir til vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir nú eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja eða stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám. Markmið styrkjanna er að gera fleiri nemendum sem taka starfsþjálfun sem hluta af starfsnámi á framhaldsskólastigi kleift að ljúka tilskilinni þjálfun á vinnustað. Ýmis störf hjá ríki og sveitarfélögum byggja á námi þar sem hluti þess er vinnustaðanám og má þar nefna félagsliða, heilbrigðisritara, læknaritara, sjúkraliða og lyfjatækna.
Fram kemur á vef BSRB að nokkuð hefur borið á því í efnahagsþrengingum undangenginna ára að nemendur hafi átt erfitt með að komast á námssamning og ljúka námi sínu. Með styrkjum til vinnustaðanáms er leitast við að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum í starfsþjálfun og gera þeim kleift að ljúka starfsnámi sínu.
Það er nýlunda að styrkir sem þessir séu veittir af almannafé en samtök á vinnumarkaði hafa lengi kallað eftir því að fyrirtæki og stofnanir fái þóknun fyrir að annast þá kennslu eða þjálfun á vinnustað sem er skilyrði fyrir því að nemendur fái lokið starfsnámi að fullu. Birna Ólafsdóttir hjá Sjúkraliðafélaginu er fulltrúi BSRB í nefnd um vinnustaðanámssjóð en auk hennar eru fulltrúar frá KÍ, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, ASÍ, Fjármálaráðuneytinu og Félagi íslenskra framhaldsskólanema í nefndinni.
Stofnaður hefur verið sérstakur vinnustaðanámssjóður um þetta málefni og þannig á að koma til móts við kostnað fyrirtækja og stofnana sem annast kennslu eða þjálfun starfsnámsnemenda. Á árunum 2012-2014 verður alls 450 milljónum króna varið til verkefnisins.
SFR hvetur þá sem taka við nemum í þjálfun til að kynna sér málið og einnig nemendur sem eru hugsanlega á leið í starfsþjálfun að vekja athygli á þessu hjá þeim vinnustöðum sem þeim langar að stunda sína starfsþjálfun hjá.



