Beint á leiðarkerfi vefsins

Til félagsmanna

12. janúar 2012

Nýjar úthlutunarreglur styrktar- og sjúkrasjóðs

Úthlutunarreglum Styrktar- og sjúkrasjóðs SFR hefur verið breytt og gilda þær frá og með 1. janúar 2012.

  • Fæðingarstyrkur hækkar úr kr. 200.000 í kr. 220.000.
  • Sjúkraþjálfun eða sambærileg þjálfun hækkar úr kr. 1.300 í kr. 1.500 pr. skipti.
  • Meðferð hjá sálfræðingi hækkar úr kr. 4.500 í kr. 5.000 pr. skipti.
  • Augnaðgerð hækkar úr kr. 40.000 í kr. 50.000 fyrir hvort auga.
  • Tannlæknastyrkur hækkar úr kr. 70.000 í kr. 80.000 ásamt því að lágmarkið sem áður var miðað við áður en félagsmenn gátu sótt um styrk er fært úr kr. 120.000 í kr. 80.000.
  • Styrkur fyrir krabbameinsskoðun hækkar úr kr. 3.500 í kr. 3.700.

Sjá nánar úthlutunarreglur hér.


Slóðin þín:

Fréttir » Til félagsmanna
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti