Beint á leiðarkerfi vefsins

Til félagsmanna

5. janúar 2012

Skráning hafin á starfslokanámskeið BSRB

Starfslokanámskeið BSRB verður haldið 31. jan. og 2. feb. næstkomandi. Námskeiðið er frítt og er einkum ætlað þeim sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum og er opið öllum félagsmönnum aðildarfélaga innan BSRB og mökum þeirra. Skráning hér á vef BSRB eða í síma 5258-8306.

Dagskrá:

Þriðjudagur 31. janúar
16.30: Ásta Arnardóttir frá Tryggingastofnun fjallar um almannatryggingakerfið
17.15: Kynning á sjálfboðaliðastarfi Rauða krossins
17.30: Kaffi.
17.45: Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur – Ár fullþroskans

Fimmtudagur 2. febrúar
16.30: Ágústa H. Gísladóttir og Páll Ólafsson frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og 
            Þórdís Yngvadóttir frá Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga fjalla um lífeyrismálin
17.30: Kaffi
17.45: Edda Björgvinsdóttir leikkona - Jákvæðni, húmor og hlýlegt viðmót


Slóðin þín:

Fréttir » Til félagsmanna
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti