Beint á leiðarkerfi vefsins

Til félagsmanna

3. janúar 2012

Skráning á vorönn hjá Starfsmennt í fullum gangi

Nú er kjörið að huga að námi næsta vors, skoða framboðið og skrá sig. Upplýsingar um öll þau fjölbreyttu námskeið sem Starfsmennt býður upp á vorið 2012 eru nú aðgengilegar á vef setursins, www.smennt.is. Hvort sem þú hefur áhuga á stuttum fyrirlestrum fyrir starfsfólk, lengri námsleiðum hannaðar sérstaklega fyrir stofnanir og starfshópa eða almenn þverfagleg námskeið ættir þú að finna eitthvað sem hentar.

Opnað hefur verið fyrir skráningar á flest námskeiðin og er ráð að skrá sig sem fyrst þar sem oftar en ekki komast færri að en vilja. Námsleiðirnar sem eru í boði henta bæði þeim sem vilja styrkja starfsgrundvöll sinn í núverandi starfi eða eru að söðla um og sækja á nýjan vettvang. Og að venju þá er allt nám félagsmönnum SFR að kostnaðarlausu en einnig opið öðrum.

Smelltu hér til að fara á heimasíðu Starfsmenntar og skoða öll námskeið í boði.


Slóðin þín:

Fréttir » Til félagsmanna