Beint á leiðarkerfi vefsins

Til félagsmanna

12. desember 2011

OPIÐ FRAM Á VOR - Ný íbúð í Kaupmannahöfn

SFR hefur tekið á leigu nýja íbúð í Kaupmannahöfn, en eins og glöggir félagsmenn hafa tekið eftir þá var hætt að leigja út íbúðina sem við höfðum í  Hollænderdypet í lok nóvember. Nýja íbúin er staðsett Ved Volden sem er í Christianshavn. Búið er að opna fyrir bókanir til loka apríl á  Orlofsvefnum. Fyrsta virka dag í janúar verður opnað fyrir maí og eftir að sumarúthlutun lýkur verður íbúðin í dagleigu í sumar.

Góðar almenningssamgöngur eru í næsta nágrenni og stutt með neðanjarðarlestinni á Konges Nytorv. Um er að ræða vel búna, bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð sem rúmar allt að 8 manns í gistingu. Íbúðin er á fjórðu hæð í gömlu sjarmerandi húsi, með lyftu. 

IMG_6443

IMG_6444

IMG_6446


Slóðin þín:

Fréttir » Til félagsmanna