Til félagsmanna
8. júní 2010
Fræðsla um svepparíkið
Fjallað verður um svepparíkið, hvað er sveppur og greiningu á hinum ýmsu tegundum sveppa. Einnig verður fjallað um eitursveppi og hvað beri að forðast svo ekki hljótist skaði af sveppaneyslu. Hvar matsveppi er helst að finna og hvenær er sveppatíminn. Hvað þarf að hafa með sér í sveppamó og hvernig maður ber sig að. Að lokum er farið í það hvernig er best að meðhöndla þá til geymslu. Í skógarferðinni er svo verkleg kennsla og upprifjun frá fyrirlestrinum. Námskeiðið er í 2 hlutum, 2. sept. kl. 20-22 á Grettisgötu 89, og 4. sept. kl. 11-15 í Heiðmörk.
Athugið! Munið að hafa meðferðis körfur og góða hnífa á laugardeginum.



