Til félagsmanna
12. maí 2010
Jónsmessuferð Lífeyrisþegadeildar SFR
Uppbókað er í Jónsmessuferð LSFR.
Að þessu sinni verður farið til Stykkishólms þriðjudaginn 22. júní. Lagt verður af stað stundvíslega kl. 8:30 frá Grettisgötu 89. Ekið verður að Hvanneyri þar sem Bjarni Guðmundsson mun taka á móti okkur og sýna okkur staðinn. Þaðan verður ekið í Stykkishólm og þar verður tekið upp nestið. Boðið verður upp á tveggja tíma ævintýrasiglingu með Sæferðum um eyjarnar. Þeir sem ekki fara í siglinguna geta farið í skounarferð með rútunni um Stykkishólm og nágrenni. Vinsamlegast látið vita hvora ferðina þið veljið um leið og þið skráið ykkur í ferðina. Ef greitt er í rútunni hafið þá vinsamlegast rétta upphæð sem er kr. 3.500 og kr. 5.000 fyrir þá sem ætla í siglinguna. Getum ekki tekið kort. Tökum með okkur nesti yfir daginn, en síðan verður kvöldverður á Hótel Stykkishólmi kl. 17. Áætlað er að koma í bæinn klukkan 21.30.



