Til félagsmanna
22. febrúar 2012
Vinnandi vegur - nýtt átak fyrir atvinnuleitendur og atvinnurekendur

Í frétt á vef BSRB kemur fram að Vinnandi vegur er sameiginlegt átak samtaka atvinnurekenda, sveitarfélaga, stéttarfélaga og ríkisins. Með átakinu gefst atvinnurekendum kostur á styrk með ráðningu nýrra starfsmanna úr hópi atvinnuleitenda. Átakið beinir sjónum sérstaklega að einstaklingum sem hafa verið án vinnu lengur en 12 mánuði. Atvinnumessa verður haldin 8. mars í tengslum við átakið.
14. febrúar 2012
Atvinnumessa 8. mars í Laugardalshöll

Nú stendur fyrir dyrum atvinnu-messa á höfuðborgarsvæðinu þann 8. mars nk. Með því er verið að hrinda í framkvæmd aðgerðum sem eiga að tryggja allt að 1500 atvinnuleitendum störf og starfstengd úrræði. Sérstök áhersla er lögð á langtímaatvinnulausa í þessu átaki. Slíkar atvinnumessur munu einnig fara fram nokkru síðar í Reykjanesbæ og á Akureyri.
1. febrúar 2012
Skráning í Gott að vita námskeið og fyrirlestra

Nú er dagskrá fyrir námskeið og fyrirlestra Gott að vita á vorönn tilbúin og hófst skráning 1. febrúar kl. 9. Ef þú ert að skrá þig inn í fyrsta sinn í námskeiðsskráningarkefi SFR þá velur þú flipann Nýskráning og skráir inn umbeðnar upplýsingar, hugar vel að því að netfang sé rétt stafsett og býrð til þitt eigið lykilorð. Þá færðu tölvupóst með tengli sem þú verður að smella á til að skráning verði virk. Ef þú hefur áður skráð þig inn og gleymt lykilorðinu þá geturðu óskað eftir því að fá það sent til þín í tölvupósti neðst undir flipanum Þegar skráður notandi.

