Til félagsmanna
21. maí 2012
LSR - kynningarfundur fyrir sjóðfélaga - Skráning stendur yfir!

Nú í lok maí heldur LSR kynningarfundi fyrir sjóðfélaga sem vilja fræðast um lífeyrismál; um uppbyggingu réttindakerfisins, iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslu. Hægt er að velja um tvær tímasetningar þann 24. maí: 8:30-10 eða 16:30-18. Skráning er nauðsynleg í síma 510-6100 eða á lsr@lsr.is.
9. maí 2012
Flogið út í heim!

Gjafabréf Icelandair eru nú komin á orlofsvef SFR og einnig gjafabréf frá Iceland Express.
27. apríl 2012
Hvenær opnast fyrir bókanir á orlofsvef fyrir haustið
Septembermánuður á Spáni og í Köben opnast 2. mai kl 9:00, október opnast þá fyrsta virka dag í júní o.s.frv. Septembermánuður í húsum hér innanlands opnast 1. júni kl 9:00 og októbermánuður opnast 2. júli o.s.frv. Endurleiguhús (hús sem SFR leigir af öðrum) eru ekki í boði eftir 31. ágúst að undanskildum Vestmannaeyjum og Þúfukoti þau verða áfram.
17. apríl 2012
Gjafabréf frá Icelandair komin í sölu
Nú er gjafabréfin sem félagsmönnum gefst kostur á að kaup komin í sölu hér á bókunarvef undir liðnum "Ávísanir". Gjafabréfið kostar kr 20.000 en raunvirði þess er kr. 25.000. Einnig er hægt að kaupa gjafabréf hjá Iceland Express og WOW. Sjá nánar hér.
12. apríl 2012
Fræðslumorgunn trúnaðarmanna - Styrkari og öruggari rödd
Skráning stendur yfir á fræðslumorgunn trúnaðarmanna sem haldinn verður 27. apríl kl. 9:15-12:15. Ingveldur Ýr Jónsdóttir gefur þátttakendum innsýn í hvernig þeir geta breytt raddbeitingu sinni, aukið raddgæði og úthald sitt og spornað við raddþreytu og vandamálum tengdum misbeitingu. Þátttakendur fá leiðir og aðferðir til að beita röddinni. Einnig er unnið með jákvætt hugarfar og sjálfsstjórn.
11. apríl 2012
Stofnun ársins 2012 - Úrvinnsla gagna hafin!
Nú er búið að loka fyrir svörun í könnuninni Stofnun ársins og launakönnun og úrvinnsla gagna hjá Capacent hafin. Gert er ráð fyrir því að dregið verði um vinninga í happdrættinu í næstu viku og verða vinningsnúmerin sett á vefinn í kjölfarið.
3. apríl 2012
Síðustu forvöð að skrá sig á námskeiðið Framrás 1 - Ég og starfið
Skráningu lýkur á morgun á námskeiðið Framrás 1 - Ég og starfið sem hefst mánudaginn 16. apríl. Um er að ræða námskeið þar sem lögð er áherlsa á samskipti og samskiptafærni. Kenndar verða aðferðir til að taka á erfiðum samskiptamálum, draga úr streitu og byggja upp liðsheild á vinnustað.
27. mars 2012
Aðalfundur Félags ráðgjafa- og stuðningsfulltrúa 27. mars kl.17!
Félag ráðgjafa- og stuðningsfulltrúa heldur aðalfund sinn föstudaginn 27. apríl kl. 17. Á dagskrá eru venjubundin aðalfundarstörf.
26. mars 2012
Vilt þú skrá þig á morgun-verðarfund hjá SFR?
SFR hefur reglulega boðið félagsmönnum á morgunverðarfundi, en þeir hefjast kl. 8 með morgunverði til kl. 8:30 og standa til kl. 10. Áhugasamir geta sent skráningu á alma@sfr.is. Hugmyndin á bak við fundina er að auka tengsl milli stjórnar SFR og félagsmanna, ásamt því að stuðla að meiri samheldni og virkni innan félagsins. Sjá nánar hér.
19. mars 2012
Munið umsóknarfrest um orofshús, til og með 25. mars 2012
Umsóknarfrestur til að sækja um orofshús/orlofsávísun í sumar er til og með 25. mars 2012 (á miðnætti), en opið er fyrir umsóknir á Orlofsvefnum. Orlofsblaðið má nálgast hér.
19. mars 2012
Stofnun ársins - frestur til að svara framlengdur til og með 20. mars
Skilafrestur í könnuninni Stofnun ársins og launakönnun SFR hefur verið framlengdur til 20. mars. Við hvetjum félagsmenn til að svara könnuninni, því hærra sem svarhlutfallið er því áreiðanlegri verður könnunin. Auk þess getur heppinn þátttakandi átt von á ferðavinningi.
7. mars 2012
BINGÓ - Páskaeggjabingó 17. mars

Laugardaginn 17. mars standa Menningar- og skemmtinefndir SFR og St.Rv. fyrir páskaeggjabingói. Leikurinn hefst kl. 14, í Félagamiðstöðinni Grettisgötu 89, 1. hæð.
22. febrúar 2012
Vinnandi vegur - nýtt átak fyrir atvinnuleitendur og atvinnurekendur

Í frétt á vef BSRB kemur fram að Vinnandi vegur er sameiginlegt átak samtaka atvinnurekenda, sveitarfélaga, stéttarfélaga og ríkisins. Með átakinu gefst atvinnurekendum kostur á styrk með ráðningu nýrra starfsmanna úr hópi atvinnuleitenda. Átakið beinir sjónum sérstaklega að einstaklingum sem hafa verið án vinnu lengur en 12 mánuði. Atvinnumessa verður haldin 8. mars í tengslum við átakið.
14. febrúar 2012
Atvinnumessa 8. mars í Laugardalshöll

Nú stendur fyrir dyrum atvinnu-messa á höfuðborgarsvæðinu þann 8. mars nk. Með því er verið að hrinda í framkvæmd aðgerðum sem eiga að tryggja allt að 1500 atvinnuleitendum störf og starfstengd úrræði. Sérstök áhersla er lögð á langtímaatvinnulausa í þessu átaki. Slíkar atvinnumessur munu einnig fara fram nokkru síðar í Reykjanesbæ og á Akureyri.
1. febrúar 2012
Skráning í Gott að vita námskeið og fyrirlestra

Nú er dagskrá fyrir námskeið og fyrirlestra Gott að vita á vorönn tilbúin og hófst skráning 1. febrúar kl. 9. Ef þú ert að skrá þig inn í fyrsta sinn í námskeiðsskráningarkefi SFR þá velur þú flipann Nýskráning og skráir inn umbeðnar upplýsingar, hugar vel að því að netfang sé rétt stafsett og býrð til þitt eigið lykilorð. Þá færðu tölvupóst með tengli sem þú verður að smella á til að skráning verði virk. Ef þú hefur áður skráð þig inn og gleymt lykilorðinu þá geturðu óskað eftir því að fá það sent til þín í tölvupósti neðst undir flipanum Þegar skráður notandi.
30. janúar 2012
Aðalfundur SFR verður haldinn 22. mars 2012
Aðalfundur SFR verður haldinn 22. mars kl. 17 að Grettisgötu 89. Á dagskrá eru venjubundin aðalfundarstörf svo sem skýrsla stjórnar, reikningar félagsins, ákvörðun um iðgjald og fleira. Þá verður kynnt stjórnarkjör en kosið er á tveggja ára fresti. Einnig verður kosið í stjórnir sjóða og teknar fyrir lagabreytingar. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á aðalfund.
27. janúar 2012
Gott að vita - skráning hefst 1. febrúar

Nú er dagskrá fyrir námskeið og fyrirlestra Gott að vita á vorönn tilbúin og hefst skráning 1. febrúar kl. 9. Ef þú ert að skrá þig inn í fyrsta sinn í námskeiðsskráningarkefi SFR þá velur þú flipann Nýskráning og skráir inn umbeðnar upplýsingar, hugar vel að því að netfang sé rétt stafsett og býrð til þitt eigið lykilorð. Þá færðu tölvupóst með tengli sem þú verður að smella á til að skráning verði virk. Ef þú hefur áður skráð þig inn og gleymt lykilorðinu þá geturðu óskað eftir því að fá það sent til þín í tölvupósti neðst undir flipanum Þegar skráður notandi.
17. janúar 2012
Styrkir til vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir nú eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja eða stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám. Markmið styrkjanna er að gera fleiri nemendum sem taka starfsþjálfun sem hluta af starfsnámi á framhaldsskólastigi kleift að ljúka tilskilinni þjálfun á vinnustað. Ýmis störf hjá ríki og sveitarfélögum byggja á námi þar sem hluti þess er vinnustaðanám og má þar nefna félagsliða, heilbrigðisritara, læknaritara, sjúkraliða og lyfjatækna.
12. janúar 2012
Nýjar úthlutunarreglur styrktar- og sjúkrasjóðs
Úthlutunarreglum Styrktar- og sjúkrasjóðs SFR hefur verið breytt og gilda þær frá og með 1. janúar 2012. Fæðingarstyrkur hækkar, ásamt styrk fyrir sjúkraþjálfunar, meðferð hjá sálfræðingi, augnaðgerð, tannlækningum og krabbameinsskoðun.
5. janúar 2012
Skráning hafin á starfslokanámskeið BSRB
Starfslokanámskeið BSRB verður haldið 31. jan. og 2. feb. næstkomandi. Námskeiðið er frítt og er einkum ætlað þeim sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum og er opið öllum félagsmönnum aðildarfélaga innan BSRB og mökum þeirra. Skráning hér.
3. janúar 2012
Skráning á vorönn hjá Starfsmennt í fullum gangi
Nú er kjörið að huga að námi næsta vors, skoða framboðið og skrá sig. Upplýsingar um öll þau fjölbreyttu námskeið sem Starfsmennt býður upp á vorið 2012 eru nú aðgengilegar á vef setursins, www.smennt.is. Hvort sem þú hefur áhuga á stuttum fyrirlestrum fyrir starfsfólk, lengri námsleiðum hannaðar sérstaklega fyrir stofnanir og starfshópa eða almenn þverfagleg námskeið ættir þú að finna eitthvað sem hentar.

