Beint á leiðarkerfi vefsins

Til félagsmanna

28. september 2011

Enskunámskeiðið „Speaking up“

Skráning stendur yfir á námskeiðið „Public Speaking and Delivering Presentations in English“ sem hefst 5. okt. nk. Um er að ræða 12 klst. námskeið sem hún Mica Allan kennir og er kennt 2 klst. í senn alls 6 skipti. Mjög mikil ánægja hefur verið meðal þátttakenda á námskeiðunum hennar sem haldin hafa verið undir merkjum Gott að vita.

22. september 2011

Skáning á Gott að vita námskeið hafin

SFR býður félagsmönnum upp á fjölmörg námskeið nú á haustönn undir heitinu "Gott að vita". Dagskránna er að finna hér á síðunni en auk þess er Blað stéttarfélaganna SFR og STRV í dreifingu til félagsmanna. Opnað hefur verið fyrir skráningu og eru félagsmenn hvattir til þess að skrá sig sem fyrst til þess að tryggja sér pláss. Sjá nánar hér.

19. september 2011

Félagsráð fundar 23.sept.

Fyrsti fundur Félagsráðs SFR verður haldinn 23. sept. Í félagsráði eiga sæti stjórn SFR, formenn fagfélaga og deilda og 15 trúnaðarmenn sem voru kosnir á fundi trúnaðarmanna 1. sept. sl. Fundir félagsráðs eru opnir félagsmönnum SFR og hafa þeir málfrelsi og tillögurétt, en ekki atkvæðisrétt. Hafi félagsmaður áhuga á að sitja fundinn verður hann að tilkynna þátttöku fyrir kl. 16 þann 21. sept. í síma 525-8340 eða senda póst á alma@sfr.is. Sjá dagskrá hér.

12. september 2011

Stafgöngunámskeið - nokkur laus pláss

Námskeiðið hefst 15. sept. og verður fjallað um stafgöngu, sem hefur farið eins og eldur í sinu um Evrópu, og hvaða tækni er best að beita við slíka göngu. Námskeiðið er þannig uppsett að fyrsti tíminn er fyrirlestur og næstu 4 tímar eru gönguæfingar. Gengið verður í Laugardalnum (hist við Skautahöllina). Skráning og nánari upplýsingar hér.

8. september 2011

Fundi Starfsmenntunar-sjóðs frestað

Vegna veikinda þarf að fresta fundi Starfsmenntunarsjóðs SFR um viku og verður hann því haldinn 15. september nk.

6. september 2011

Forystufræðsla BSRB

Á vef BSRB kemur fram að Forystufræðsla BSRB í samvinnu Fræðslusetrið Starfsmennt hefst í næsta mánuði og er skráning í námskeiðið hafin. Fræðslan er ætluð fyrir stjórnir og starfsmenn aðildarfélaga BSRB. Markmið námsins er að efla þekkingu og fagmennsku þátttakenda en áhersla er lögð á lýðræðislega virkni, upplýsingamiðlun og liðsheild. Ætlunin er að styrkja almenna starfs- og stjórnendahæfni til að geta mætt fjölbreyttum verkefnum og nýjum áherslum í þjónustu við félagsmenn. Sjá nánar hér.


Slóðin þín:

Fréttir » Til félagsmanna