Til félagsmanna
31. janúar 2011
Breytt úthlutunartímabil orlofshúsa
Breyting verður á úthlutunartímabila orlofshúsa í sumar. Úthlutað verður frá 27. maí til 2. sep., en það er 2 vikum skemur en áður. Breytingin er vegna þess að tvær fyrstu vikur sumars voru ekkert sérstaklega vinsælar. Þriðjudaginn 1. feb. mun orlofsvefurinn opna fyrir bókanir fyrir tímabilið fram til 27. maí og þá gildir reglan, fyrstur bókar fyrstur fær. Dagarnir í kringum páska (20.-27. apríl) eru þó undanskyldir, því þeim er úthlutað í sérstakri páskaúthlutun sem kynnt er í SFR blaðinu sem berst félagsmönnum á næstu dögum.
14. janúar 2011
Fjölbreytt úrval námskeiða

Nýr námsvísir Fræðslusetursins Starfsmenntar er kominn út. Þar er að finna námsleiðir sem í boði eru vorið 2011.
6. janúar 2011
Starfslokanámskeið
5. janúar 2011
Náms- og starfsráðgjöf fyrir alla félagsmenn hjá Starfsmennt
Fræðslusetrið Starfsmennt býður félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á náms- og starfsráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun.

